fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fókus

Garðveisla KALEO í þjóðgarðinum á Þingvõllum

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 29. mars 2026 13:14

KALEO

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórsveitin KALEO hefur boðað til stórtónleika á Þingvõllum ásamt võldum tónlistarmõnnum þann 20.júní næstkomandi á sjálfri sólstõðuhelginni. 

Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon er skipuleggjandi viðburðarins líkt og á hinni rómuðu tónlistarhátíð Vor í Vaglaskógi síðastliðið sumar sem þótti takast með eindæmum vel.

Meðal þeirra sem fram koma auk KALEO eru Emilíana Torrini, Mugison, GDRN, Júníus Meyvant, KK, Árný Margrét, Helgi Bjõrns og Stuðmenn auk fjõlda annarra sem koma fram á tveimur sviðum; Dynbergi og Valhallarsviði.

Boðið verður upp á sætaferðir fram og til baka og þó sjálf miðasalan hefjist ekki fyrr en 9.apríl er þegar hægt að skrá sig á forgangslista og afla helstu upplýsinga á vefnum: keytoiceland.is

Formaður Þingvallanefndar Sigurður Helgi Pálmason og tónleikahaldarinn Jakob Frímann Magnússon undirrituðu sõgulegan samning um viðburðinn nú í vikulokin að undangenginni margra mánaða vinnu við greiningu lykilþátta, úttekt innviða, bílastæða, öryggis- og umferðarmála.

Sigurður Helgi Pálmason og tónleikahaldarinn Jakob Frímann Magnússon.

Stefnt er að 20.000 manna viðburði og er þegar ljóst að mikill fjõldi erlendra gesta er á leið til landsins úr stórum hópi aðdáenda KALEO, enda er sveitin í hópi mest streymdu listamanna samtímans með yfir fjóra milljarða streyma á helstu tónlistarveitum heimsins á borð við Spotify, Apple og Tidal.

Nýsamþykkt stefna um þjóðgarðinn á Þingvõllum kveður á um mikilvægi þess að fjölga heimsóknum landsmanna á þennan sögufræga stað og halda á lofti merkri sõgu hans allt frá landnámi. Þingvellir hlutu árið 2004 skráningu á Heimsminjaskrá UNESCO meðal annars sökum merkrar menningarsõgu.

KALEO  viðburðurinn, sem hefur hlotið nafnið Bergmál á Þingvõllum mun vafalítið fjölga heimsóknum landsmans  í þjóðgarðinn umtalsvert, en yfir háannatíma eru daglegir gestir þar á bilinu 7.000 – 10.000, og 90% þeirra eru erlendir ferðamenn.

Jökull Júlíusson söngvari KALEO.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala