Billy Evans, unnusti fjársvikarans Elizabeth Holmes, neitar því að hafa verið á kókaíni við tökur á heimildarmyndinni „You Can See Everything“. Í myndinni má meðal annars sjá hann allsberan og með roða í nösum.
Miðillinn TMZ greinir frá þessu.
Billy Evans, unnusti Elizabeth Holmes síðan árið 2018, segist ekki hafa verið á kókaíni þegar verið var að taka upp hina umtöluðu heimildarmynd sem sýnir líf fjölskyldunnar áður en hún hóf afplánun fyrir fjársvik. Holmes er að afplána rúmlega 10 ára fangelsisdóm fyrir svik tengd blóðskimunarfyrirtæki hennar Theranos.
Evans bauð fylgjendum sínum á samfélagsmiðlinum X að spyrja sig að hverju sem er, AMA (e: Ask me anything), á mánudag. Fékk hann margar spurningar enda hefur heimildarmyndin um unnustu hans verið ein sú umtalaðasta í langan tíma. Kvikmyndagerðarmennirnir bjuggu hjá fjölskyldunni og fengu nær óheftan aðgang að því að mynda líf fjölskyldunnar.
Kókaín?
Stukku netverjar á tækifærið og spurðu hann hvort hann hafi verið á kókaíni við tökur á myndinni. Það er einkum vegna nefroða og að Evans sést oft sjúga upp í nefið. Í einu atriði má einnig sjá hann allsberan.
Sjá einnig:
Heimildarmyndin um Elizabeth Holmes bönnuð börnum vegna nektaratriðis
„Þegar þú ert einn með tvö smábörn ertu veikur um það bil 75 prósent tímans. Ofnæmi í Austin, Texas, er ekkert grín. Ég tek klaritín á hverjum degi. Mun minna að sniffa,“ svaraði Evans.
En netverjarnir héldu áfram og gengu á hann. „Svo ekkert kókaín?“ var hann þráspurður.
„Ég hef aldrei verið aðdáandi,“ svaraði Evans.