Kortisól hefur á undanförnum misserum fengið á sig slæmt orðspor á samfélagsmiðlum þar sem hormóninu er meðal annars kennt um streitu, þreytu og þyngdaraukningu. Sérfræðingar segja hins vegar að margar þessara fullyrðinga byggist á misskilningi og að kortisól sé í raun lífsnauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi líkamans.
Í umfjöllun ástralska ríkisfjölmiðilsins ABC Australia útskýra tveir sérfræðingar hvers vegna fólk ætti ekki að hafa óþarfa áhyggjur af kortisólmagni í líkamanum.
Theresa Larkin, dósent við Wollongong-háskóla, segir að flestir tengi kortisól eingöngu við streitu, þótt hormónið gegni fjölmörgum öðrum mikilvægum hlutverkum.
„Dægursveiflan okkar, það að vakna og sofna, borða og melta matinn – kortisól gegnir mikilvægu hlutverki í öllum þessum ferlum,“ segir hún.
Hormónið er framleitt í nýrnahettunum og hjálpar meðal annars til við að stjórna blóðsykri, blóðþrýstingi og starfsemi ónæmiskerfisins.
Eðlilegt að magnið hækki
Ann McCormack, prófessor og sérfræðingur í innkirtlalækningum, segir að kortisólmagn sveiflist eðlilega yfir daginn. Það geti til dæmis hækkað skyndilega þegar fólk lendir í óvæntum aðstæðum eða undirbýr erfitt samtal.
Hún varar við vinsælum myndböndum á samfélagsmiðlum þar sem fólki er ráðlagt að forðast ákveðna líkamsrækt eða kaffidrykkju á fastandi maga til að koma í veg fyrir hækkun kortisóls.
„Skyndilegar hækkanir á kortisóli eru ekki eitthvað sem heilbrigt fólk þarf að óttast,“ segir McCormack.
Sérfræðingarnir viðurkenna að langvarandi streita geti haft neikvæð áhrif á heilsuna, en leggja áherslu á að ekki sé rétt að kenna kortisóli sjálfu um vandann.
„Hormóninu er kennt um svo margt, en það er langvarandi streitan sem er orsökin og það er hana sem þarf að takast á við,“ segir Larkin.
Betra að einbeita sér að svefni og lífsstíl
McCormack bendir á að til séu sjaldgæfir sjúkdómar, svo sem Cushings-heilkenni, þar sem óeðlilega mikið kortisól getur meðal annars valdið háþrýstingi, sykursýki, beinþynningu og þyngdaraukningu.
Hjá heilbrigðu fólki séu vísindalegar sannanir hins vegar takmarkaðar fyrir því að hærra kortisólmagn tengist þeim fjölmörgu heilsufarsvandamálum sem því eru gjarnan eignuð á samfélagsmiðlum.
Hún ráðleggur fólki að leggja frekar áherslu á góðan svefn, reglulega hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl en að reyna að stjórna kortisólmagninu sérstaklega.
Larkin tekur undir þetta og segir mikilvægt að fólk einbeiti sér að raunverulegum orsökum streitu.
„Við þurfum að skilja að það eru orsakir streitunnar sem við verðum að takast á við. Kortisól er einfaldlega hormón sem flytur boð í líkamanum.“