Hvað ef foreldrar kenna börnum sínum eitt í orði en sýna svo aðra framkomu á borði? Þessu veltir móðirin og meistaraneminn Birta Róbertsdóttir fyrir sér í aðsendri grein hjá Vísi þar sem hún bendir á að foreldrar þurfi að vera fyrirmynd og geti ekki lagt það að börnum sínum að gera eitt geri þeir sjálfir annað.
„Við tölum mikið um einelti, félagslega útskúfun, fordóma og mikilvægi þess að öllum börnum líði vel. Við tölum um að kenna börnum virðingu og umburðarlyndi og að enginn eigi að þurfa að standa einn. Við viljum að börnin okkar séu góðir vinir, sýni öðrum skilning og taki vel á móti þeim sem eru nýir í hópnum.
En hversu oft hugsum við út í hvaða áhrif okkar eigin orð og hegðun hafa á það hvernig börnin okkar koma fram við aðra?
Hvað ef við foreldrarnir erum sjálf hluti af vandanum?“
Barnið dæmt
Birta rekur í grein sinni að barn geti fengið á sig ákveðna ímynd. Þetta þekki líklega flestir. Barn er þá kallað erfitt, leiðinlegt, skrítið eða til vandræða. Það sé ekki auðvelt að sleppa undan slíku orðspori, sérstaklega ekki þegar foreldrar taki þátt í að viðhalda því með því að ræða um barn með neikvæðum hætti, með því að draga ályktanir og miðla viðhorfum til barna sinna. Foreldrar geti ekki ætlast til þess að börn sýni öðrum virðingu ef þeir gera það ekki sjálfir.
Það geti svo haft alvarleg áhrif á líðan og stöðu barns verði það fyrir neikvæðu umtali, fordómum og útilokun. Þetta sýni að það sé brýnt mál að gæta þess að þegar tekist er á við samskiptavanda barna sé ekki verið að fella dóm um barnið sem svo fylgi því út lífið.
Hvetur Birta foreldra til að líta í eigin barm og sjá hvort fordómar séu að lita álit þeirra gagnvart öðrum börnum en þeirra eigin. Börn séu alls konar. Þau komi úr ýmsum áttum, eigi sér ólíkan bakgrunn og búi við ólíkar aðstæður. Þau eigi það ekki skilið að vera stimpluð fyrir vikið.
Foreldrahlutverkið felur meira í sér
Birta hvetur foreldra eins til að skoða hegðun barna sinna gagnrýnum augum og að ganga ekki alltaf út frá því að þeirra barn sé saklaust.
„Börnin okkar geta líka tekið þátt í að útiloka aðra, dreifa slúðri eða sýna særandi hegðun. Þau geta verið þau sem skilja aðra út undan eða gera öðrum erfitt fyrir að finna sinn stað í hópnum, jafnvel án þess að við sem foreldrar gerum okkur grein fyrir því. Það er ekki alltaf auðvelt að horfast í augu við að okkar eigið barn geti átt þátt í því að öðrum líði illa en það er engu að síður hluti af ábyrgð okkar sem foreldra að geta viðurkennt það og brugðist við.“
Að vera foreldri þýði ekki það eitt að standa með barni sínu og verja það, sama hvað. Það felst líka í því að kenna börnum að taka ábyrgð á eigin hegðun, samkennd, virðingu fyrir öðrum og hvernig orð geta haft meiri áhrif en þau kannski átta sig á.
Barn sem hefur átt erfitt á skilið tækifæri til að fá að byrja upp á nýtt. Barn sem gerir mistök á skilið að fá að læra af þeim og sýna að það geti gert betur. Barn sem hefur fengið á sig slæmt orð á ekki að þurfa að eyða allri æskunni í að sanna sig.
Birta tekur fram að það sé ekki hægt að uppræta einelti og félagslega útskúfun ef foreldrar horfast ekki í augu við sinn hlut. Foreldrar þurfi að gæta þess hvaða skilaboð þeir senda með eigin orðum og hegðun.
„Því útilokun byrjar ekki alltaf í skólanum eða vinahópnum, stundum byrjar hún í samtölum fullorðinna, við eldhúsborðið, í foreldrahópum eða í skilaboðum sem okkur finnst kannski saklaus.[...] Við erum fyrirmyndir barnanna okkar. Við getum ekki kennt þeim að vera hluti af lausninni ef við erum sjálf hluti af vandanum.“