Fókus

Gunnar Smári fagnar stórum áfanga í dag

Mynd
Gunnar Smári Egilsson.

Gunnar Smári Egilsson greinir frá því í færslu á Facebook í dag að 31 ár sé liðið frá því að hann hætti að drekka áfengi. Hann segist þakklátur fyrir árin sem liðin eru og lýsir jafnframt ánægju sinni með lífið, þrátt fyrir að líkaminn sé farinn að láta á sjá.

„Í dag er 31 ár síðan ég hætti að drekka og ekki margt um það að segja, nema allt gott. Ég er ósköp feginn og þakklátur fyrir þennan tíma og fyrir að vera á lífi, enn þá spriklandi í hausnum þótt ég sé haltur og illt í bakinu.“

Gunnar Smári segir einfaldlega mjög gaman að vera til og veltir fyrir sér undrum tilverunnar.

„Njótum þessa lífs, og þessa heims sem er nú ljóta ævintýrið, margt skrítið, fallegt, óhugnanlegt og fyndið, svo margt að maður kemst yfir minnst af því.“

Hann tekur þó fram að ætlunin hafi alls ekki verið að skrifa sérstaklega um edrúafmælið. Hann hafi einfaldlega munað eftir dagsetningunni þegar hann var að birta endursögn sína á ljóði bandaríska skáldsins Patriciu Lockwood, sem hann hafði dundað sér við um nóttina vegna andvöku af völdum bakverkja.

Gunnar Smári lýsir ljóðinu sem bæði sársaukafullu og heilandi og hvetur fólk til að lesa það.

Þótt edrúafmælið hafi þannig ekki verið tilefni skrifanna er ljóst af orðum hans að hann er þakklátur fyrir síðustu rúmu þrjá áratugina.

„Frammi fyrir smæð minni er lífið og heimurinn bæði eilífð og óendanleiki, og þegar ég finn fyrir því líður mér vel, finnst ég eiga heima í heiminum.“

Færslu Gunnars og ljóðið má sjá hér að neðan.