Haraldur Erlendsson geðlæknir segir okkur komin of langt í góðmennsku á Íslandi og að þrautsegja sé að þurrkast úr fólki. Haraldur, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segir geðheilbrigðiskerfið löngu sprungið og að við þurfum að finna nýjar leiðir:
,,Mannskepnunni er eiginlegt að sveiflast á milli mildi og hörku, en það fylgir því hætta að fara of langt, í hvora áttina sem er farið. Við erum að taka burt þrautsegjuna úr fólki með því að fara of langt í góðmennsku. Þó að það sé margt gott við þessa góðmennsku og að harkan hér á árum áður hafi oft ekki verið neitt annað en illmennska erum við komin of langt í meðvirkni núna. Við erum búin að ganga ansi langt í að þurrka út þrautseigju og innri styrk með of mikilli góðmennsku,“ segir Haraldur og heldur áfram:
„Í hinum vestræna heimi er verið að búa til regluverk út í eitt sem á að miða að fullkomnu öryggi á öllum vígstöðvum, en það er ekki hægt að koma í veg fyrir hættur í lífinu og ef þú tekur aldrei áhættu eða lætur reyna á þig, þá missir þú líka af gleðinni og styrkir ekki skapgerðina. Geðlæknar nú á dögum eru oft að meðhöndla fullorðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn eða unglingar. Það vantar allan tilgang og þetta fólk hefur ekki fengið tækifæri til að fullorðnast. Við erum ekki hönnuð fyrir að festast í þægindaramma þar sem allt er auðvelt.“
Haraldur segir stöðuna orðna þannig að ekkert geðheilbrigðiskerfi geti ráðið við stöðuna miðað við sama áframhald:
„Geðheilbrigðisþjónusta er mjög kostnaðarsöm og hefur þess vegna oft átt undir högg að sækja. Þegar það þarf að skera niður í heilbrigðiskerfinu er oft byrjað á að höggva í geðheilbrigðisþjónustuna. En staðan er orðin sú að vinnuframlag í þjóðfélaginu er að meðaltali skert um nærri 30 prósent vegna geðrænna vandamála. geðheilbrigðiskerfið er löngu sprungið og við sem samfélag verðum að finna nýjar lausnir ef ekki á illa að fara. Vandinn er orðinn of dýr til þess að það sé hægt að sinna honum eins og best væri á kosið. Það er augljóslega eitthvað að í því hvernig við lifum lífi okkar miðað við það hve hratt geðrænni heilsu okkar sem þjóðar er að hraka,“ segir Haraldur, sem talar í þættinum einnig um faraldur einmannaleika og innri tómleika:
,,Hin raunverulegu auðæfi í lífinu eru að geta staldrað við og notið þess að vera til og eiga góð samskipti við vini og fjölskyldu. Það sem skilur eitthvað eftir í lífinu og eru í raun hin raunverulegu verðmæti er eitthvað sem við höfum ekki verið að setja í forgang. Skynfæri okkar og heilinn eru stöðugt að taka við upplýsingum án þess að geta unnið almennilega úr þeim. Svefninn er að verða eini staðurinn þar sem heilinn fær tækifæri á einhvers konar úrvinnslu. Mikið af fólki hefur einangrað sig, en við þurfum öll samskipti og samveru með fólki til þess að funkera almennilega. Oft verður þetta vítahringur, því að þeir sem þjást af kvíða, þunglyndi eða kulnun hafa tilhneigingu til að einangra sig, en það sem þetta fólk þyrfti mest á að halda til að ná bata væru mikil samskipti og tengsl við annað fólk.Við þurfum að vera úti, að hreyfa okkur og hitta fólk. Án þess er heilsan bara ekki í góðu lagi. Við á vesturlöndum erum upp til hópa orðin mjög aftengd og ef við einangrum okkur enn meira er bara voðinn vís. Það er bæði merkingarleysi, skortur á tengslum við náttúru og annað fólk sem býr til stóran hluta geðrænna kvilla nútímans.“
Haraldur segir tíma til komin að staldra við og skoða á hvaða vegferð við séum almennt:
,,Við erum upp til hópa alltaf að forðast að vera og dvelja. Við erum alltaf á ferðalagi frá einhverju en ekki með einhverju. Það er bara tími til að gera, en enginn tími til að vera. Við erum á hlaupum undan því sem er. Það að dvelja í tóminu getur verið mjög erfitt tímabundið, en það gefur þér innri styrk þegar þú æfir þig í því. Ef þú ert alltaf að hlaupa frá tóminu þá verður þú á endanum merkingarlaus aumingi,“ segir Haraldur og heldur áfram:
,,Við þá reynslu að komast nálægt dauðanum öðlast fólk oft mikinn tilgang. Svokölluð nær dauða reynsla skilur fólk oft eftir gjörbreytt. Oft á tíðum hverfur hræðslan við dauðann og það kemur meiri tilangur og jafnvel einhvers konar unaður. Fólk byrjar oft að spyrja meiri spurninga en áður og jafnvel gjörbreytir lífi sínu í grundvallaratriðum. Við sem samfélag erum mjög hrædd við dauðann og það er nánast „taboo“ að tala um hann, en margt bendir til að þeir sem sannarlega komast nálægt dauðanum sjái að við ættum ekki að vera á harðahlaupum undan honum.“
Hægt er að nálgast viðtalið við Harald og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is