Fókus

Lóla rannsakar hrottalegt morð á Kópaskeri - Arnaldur á nýjum slóðum

Mynd

Þrítugasta bók Arnaldar Indriðasonar á jafn mörgum árum er komin út. Morðið á Evelyn Gray er hröð og hörkuspennandi glæpasaga þar sem amerískur kvikmyndaheimur mætir íslenskum veruleika í hringiðu óvæntra og skelfilegra atburða.

Ung lögreglukona, Lóla, er send frá Akureyri á Kópasker þegar fjölmennt kvikmyndatökulið frá Hollywood sem þar er að störfum kvartar undan heimafólki. Verið er að taka upp glæpaþáttaröð og heimsþekkt aðalleikkonan heldur hópnum í heljargreipum með dyntum sínum og kröfum. Í sömu andrá og norðlensk stórhríð skellur á og þorpið verður sambandslaust við umheiminn finnst leikkonan myrt með hrottalegum hætti. Lóla reynir að ná stjórn á aðstæðum með hjálp heimamanns sem eitt sinn var í lögreglunni og í myrkrinu hefst lífshættulegur eltingarleikur.

Bókin er sú fyrsta í nýjum bókaflokki Arnaldar.

Mynd

Hér er fyrsti kafli bókarinnar, birtur með góðfúslegu leyfi Forlagsins:

Snjónum hafði kyngt niður undanfarna daga og greinar trjánna svignuðu undan þunga hans þegar hún skokkaði í gegnum Kjarnaskóg og fór hægt yfir. Gönguleiðir höfðu verið ruddar í gegnum skóginn og hún fylgdi einni þeirra og gætti þess að renna ekki í hálkunni. Þetta var snemma morguns og hún var með höfuðljós sem lýsti fram á göngustíginn. Hún var ein í skóginum og það var dimmt og það brakaði í snjónum undan fótum hennar og einhvers staðar frá barst tíst fugla úr trjánum án þess að hún veitti því nokkra athygli. Hún var með Arctic Monkeys í eyrunum. Hrifin af heiti plötunnar: Ég er ekki það sem fólk segir að ég sé. 

Hún naut þess að vakna ein á morgnana á meðan bærinn svaf og hlaupa í gegnum skóginn. Hún skokkaði alltaf sömu vegalengdina, sama stíginn, sömu leiðina inn í skóginn og út úr honum aftur, ein með trjánum. Síðustu tíu mínúturnar tók hún á sprett og sá á heilsuúrinu hjartsláttinn aukast til muna þangað til hún nam staðar við blokkina og blés mæðinni. Þetta var í endaðan nóvember og það var kalt í veðri en hún gerði samt nokkrar teygjuæfingar framan við innganginn áður en hún hélt upp í íbúðina á annarri hæðinni. Setti yfir kaffi. Fór í sturtu og klæddi sig. Drakk kaffið með diski af múslí og dreif sig í vinnuna. Jólalög í útvarpinu. Hún slökkti. 

Vaktaskiptin gengu hratt fyrir sig. Komið hafði til ryskinga framan við skemmtistað um tvöleytið um nóttina og tveir karlmenn sváfu af sér áfengisvímuna í fangageymslunni. Tveimur tilkynningum um heimilisofbeldi var sinnt undir morgun og voru atvikin talin alvarleg. Karlmennirnir fjarlægðir af heimil unum. Málin sett í ferli. Innbrot í skóbúð leystist á staðnum. Þjófurinn rann til á svellbunka þegar hann var að brjóta upp dyrnar aftan við verslunina og féll í götuna og viðbeinsbrotn aði. Hann var drukkinn og kallaði sjálfur á hjálp. Eldur kom upp í ökutæki sem stóð utan við Bónus og var mjög líklega um íkveikju að ræða. Bifreiðar runnu til í hálku. Minni háttar árekstrar. 

Morgunninn fór að mestu í skriffinnsku en nokkru fyrir há degið fékk hún boð frá yfirmanni sínum um að hitta sig þegar hún ætti lausa stund. Stuttu síðar settist hún inn hjá honum, feitlögnum manni um sextugt sem hét Sigmundur og hafði unnið lengi við embættið og reynst henni ágætur yfirmaður.

– Jæja, vinan, sagði hann og ýtti frá sér einhverjum papp írum sem hann var að ljúka við að undirrita. Segirðu ekki allt gott? 
Hann hafði setið á bak við þetta skrifborð í meira en tuttugu ár sem yfirmaður rannsóknardeildar lögregluembættisins á Norðurlandi eystra og allar konur voru vinur hans.

– Jú, ágætt, sagði hún.
– Ánægð í vinnunni, Lóla?
– Get ekki sagt annað, svaraði hún.
– Ánægð með okkur Akureyringa?
– Sæmilega, sagði hún og brosti. 

Hann hafði spurt hana að þessu áður eins og honum væri í mun að henni félli vel við staðinn og fólkið. Hún hafði flutt norður fyrir hálfu ári og þurfti ekki að ljúga neinu þegar hún sagðist kunna vel við sig. Saknaði í það minnsta einskis úr borg inni. Allt var minna í sniðum og hægara í förum og það átti vel við hana. Bærinn var fallegur hvort sem var að vetri til eða sumri og fólkið viðmótsþýtt. Starfsandinn á lögreglustöðinni góður. Hún gat ekki kvartað yfir neinu. Lögreglustörfin létt bærari. Henni féll það ágætlega.

– Við höfum fengið inn til okkar svolítið sérstaka tilkynningu eða beiðni sem ég þarf eiginlega að afgreiða, sagði Sigmundur eins og honum virtist það þvert um geð. Þú hefur heyrt af þessu kvikmyndaliði hérna fyrir norðan, er það ekki?
– Kvikmyndaliði?
– Þessu sem er komið á Kópasker? Hollywoodfólkinu? Að gera bíómynd eða seríu, ég man aldrei hvort. Skiptir ekki máli.
– Já, það, sagði hún og mundi eftir fréttum af heilmiklu til standi á Kópaskeri þangað sem kominn var kvikmyndahópur vestan frá Los Angeles.
– Þau voru að biðja okkur um aðstoð, hélt Sigmundur áfram. Það er að segja íslenska fyrirtækið sem þjónustar Hollywood liðið. Þau kvarta undan hnupli og skemmdum. Mjög smávægi legt, skildist mér, en það er þarna rándýr tækjabúnaður og einhverjar mannaferðir sem valda paranoju hjá þeim. Hugsan lega einhverjir sveitamenn að stríða utanbæjarfólkinu. Það má trúa öllu illu upp á þá. Ég held að þetta sé ekki neitt neitt en það er nú svona, eitthvað þarf víst að gera.
– Ég skil.
– Þau vilja ekki að þetta fari hátt, vilja ekki neina slíka um fjöllun, neikvæða umfjöllun altso, vilja ekki athyglina sem þetta gæti vakið, skilurðu. Kvikmyndafólkið. Vilja bara vera í friði með sitt. Það er víst ein ástæðan fyrir því að það valdi þennan … þennan útnára.
– Það er skiljanlegt.
– Já, ætli það ekki.
– Er hún ekki með þeim, leikkonan?
– Leikkonan?
– Hollywoodstjarnan? Heitir hún ekki Evelyn? Evelyn Gray?
– Já, hún, jú, er það ekki? sagði Sigmundur og viðurkenndi að hann væri ekki mjög vel að sér í þeim fræðum. En allavega, ég ætlaði að hundsa þetta, þú veist, þetta er eitthvert svona kvabb og fólkið ætti að geta fundið sjálft út úr þessu, en þá höfðu þau samband suður og voru víst eitthvað að kvarta. Ég var að tala við aðstoðarmann ráðherrans í morgun og núna er þetta orðið eitthvert forgangsmál hjá honum. Hann spurði hvort væri ekki hægt að senda mann þangað að vita hvort væri ekki allt í lagi og athuga með þessar mannaferðir og … það er engin lögregla á Kópaskeri. Þú veist það. Hefur ekki verið þar lengi.

– Ertu þá … ætlarðu að senda mig?
– Þau eru eitthvað fáliðuð á Húsavík, sagði Sigmundur. Veik indi. Og þau á Þórshöfn eru að eiga við kannabisræktun á svæðinu, þú veist, fást við alvöru lögreglustörf … Lólu stökk ekki bros.
– En allavega, sagði Sigmundur, þau fyrir sunnan spurðu hvort við hefðum ekki einhvern á lausu í þetta. Þú ert nýflutt í bæinn, hélt yfirmaður hennar áfram eins og til þess að afsaka sig. Kemur úr Reykjavík og kannt kannski betur á svona fínerí frá Hollywood. Ný hér hjá lögreglunni. Engin fjölskylda.
– Vá …
– Þú veist hvað ég meina. Ef þú skyldir þurfa að gista. Annars erum við bara að tala um stuttan skreppitúr, sagði Sigmund ur vinsamlega. Ekki meira. Vera sýnileg. Róa þetta lið. Taka skýrslur af því. 
Lóla kinkaði kolli.
– Talarðu ekki ágæta ensku?
– Ég get bjargað mér.
– Þú ert á bíl, er það ekki? 

Enn kinkaði Lóla kolli.
– Þú ferð bara á honum. Ég get ekki misst okkar bíla í þetta. Þú talar við mann sem heitir, bíddu við. Sigmundur greip í ein hver blöð á skrifborðinu. Ómar, já, hann er eitthvert númer þarna hjá íslenska fyrirtækinu sem aðstoðar Hollywoodliðið. Við skulum reyna að gera þetta almennilega svo ráðherrann verði glaður. Þú kemur þér vonandi hingað aftur fyrir nóttina.
– Kópasker?
– Hefurðu komið þangað?
– Nei. Aldrei.
– Mesta nápleisið af þeim öllum.
– Ég hef eitthvað heyrt af því.
– Þú ættir að taka með þér skjólgóðar flíkur, vinan, sagði Sigmundur og gerðist ögn föðurlegur. Það er víst slæm lægð á leiðinni.