Fókus

Vendingar í fjölskyldudrama Osbourne-fjölskyldunnar

Mynd
Myndir/Getty

Osbourne-fjölskyldan er í sárum eftir að fjölskyldufaðirinn, Ozzy Osbourne, lést í fyrra en líka sökum þess að börnum rokkarans og eiginkonu hans, Sharon, semur ekki.

Ozzy átti sex börn. Tvö þeirra, þau Louis og Jessicu, átti hann með fyrri eiginkonu sinni, Thelmu Riley, og hann ættleiddi einnig son hennar, Elliot, sem hún átti í fyrra sambandi.

Síðan giftist hann Sharon og áttu þau saman þrjú börn, Aimee, Kelly og Jack.

Þegar frægir raunveruleikaþættir um fjölskylduna voru í sjónvarpinu á árum áður vakti það athygli að Aimee kaus að halda sig fyrir utan sviðsljósið. Hún var svo mótfallin þáttunum að hún ákvað að flytja að heiman aðeins 16 ára gömul. Henni fannst nóg að eiga frægan föður og kærði sig ekki um að verja unglingsárum sínum fyrir framan myndavélar. Aimee er tónlistarkona eins og faðir hennar og syngur í poppsveitinni ARO.

Systkinin voru þó áfram náin en það heyrir nú sögunni til þar sem Kelly tilkynnti í september að hún og stóra systir hennar væru eins og olía og vatn. Þeim kæmi illa saman og reiknaði Kelly ekki með því að það væri að fara að breytast.

„Ég virði hana og samþykki en við erum ólíkar og það er í lagi. Ef þú samþykkir mig ekki eins og ég er og ert stöðugt að reyna að breyta mér og segja hræðilega hluti um mig og virðist virkilega blómstra þegar mér gengur illa þá kæri ég mig ekki um að hafa þig í lífi mínu,“ sagði Kelly.

Nú mun Kelly vera sár út í móður sína og yngri bróður fyrir að hafa ekki lokað á Aimee líka. Sharon og Jeck hittu Aimee á dögunum og mun það hafa komið Kelly í opna skjöldu.

Heimildarmaður sagði við The Sun:

„Kelly á sem stendur ekki í samskiptum við Aimee og það kom henni að óvörum að sjá kósí endurfundi þeirra þriggja“

Kelly mun upplifa þetta sem svik. Jack hafði sjálfur lýst því í viðtali á síðasta ári að hann og Aimee væru ekki náin, það væri ekkert leyndarmál.