Fókus

Ingólfur villtist af réttri braut með alvarleg áföll á bakinu - Ákvörðun tengdaforeldranna breytti öllu

Mynd
Skjáskot/RÚV

Ingólfur Snær Víðisson á að baki erfiða áfallasögu sem hann nýtir í dag í störfum sínum með jaðarsettum hópum. Hann lýsir því fyrir Viktoríu Hermannsdóttur í Svona er lífið hvernig honum tókst að snúa við blaðinu eftir að hafa leiðst út í glæpi vegna fíknisjúkdóms, en þátturinn var sýndur á RÚV í kvöld.

Erfið áfallasaga

Þegar Ingólfur var í móðurkviði hvarf hálfbróðir hans, Valgeir Víðisson, sporlaust en um er að ræða eitt umtalaðasta og dularfyllsta lögreglumál Íslands. Hann hefur aldrei fundist þó svo að grunur leiki á að hann hafi látið lífið í átökum. Tveir menn voru um tíma með stöðu sakbornings í málinu en engin ákæra var gefin út og fengu sakborningarnir tveir síðar bætur vegna gæsluvarðhalds sem þeir voru látnir sæta.

Ingólfur segir Viktoríu að þetta hafi haft mikil áhrif á föður hans og ekki hjálpaði það til þegar móðir Ingólfs lést þegar hann var um fjögurra ára gamall. Ingólfur og systir hans ólust þá upp hjá einstæðum föður, sem aldrei hætti að berjast fyrir réttlæti fyrir Valgeir. Faðir Ingólfs lést svo árið 2010 en þá var Ingólfur aðeins 14 ára gamall og munaðarlaus. Skömmu áður hafði Ingólfur byrjað að fikta við vímuefni og eftir að faðir hans dó flakkaði hann á milli ýmissa úrræða á vegum barnanefndar, unglingaheimila, neyðarvistunar Stuðla eða úti í neyslu.

„Ég man eftir bara öskrandi einmanaleika og óvissu í hausnum á mér,“ segir Ingólfur. Hann byrjaði svo í afbrotum til að fjármagna neyslu og hann segir að það hafi einnig falið í sér einhvers konar flótta frá raunveruleikanum. Hann fékk sinn fyrsta dóm 15 ára og fór fyrst í fangelsi tveimur árum síðar. Daginn eftir að hann var tvítugur hóf hann í fyrsta sinn afplánun á Litla-Hrauni.

Árið 2016 urðu þó kaflaskil.

Kaflaskil þegar tengdaforeldrarnir tóku áhættuna

„Ég hafði enga trú á því að ég gæti orðið edrú, ég hafði enga trú á því að ég gæti eignast eðlilegt líf,“ segir Ingólfur en hann hafði rangt fyrir sér. Hann byrjaði með þarna með stúlku og foreldrar hennar ákváðu að „taka séns“. Þau leyfðu unga parinu að búa í stúdíóíbúð sem hafði verið útbúin í bílskúr þeirra gegn því skilyrði að þau héldu sér réttu megin við línuna.

Ingólfur segir að þetta hafi valdið kaflaskilum. Hann hafi upplifað sig útskúfaðan úr samfélaginu en þarna fékk hann tækifæri sem hann vildi ekki klúðra. Og tækifærin reyndust svo fleiri. Honum tókst að komast í úrræði, þar með talið Grettistak, og einnig vinnu. Hann byrjaði að sjá að hann gæti átt eðlilegt líf en það tæki bara smá tíma.

Tengdamóðir hans segir Viktoríu að henni hafi ekkert litist á þennan kærasta sem dóttir hennar var komin með en það hafi verið tvennt í stöðunni, að leyfa parinu að búa í bílskúrnum eða horfa á eftir því fara eitthvert annað. Hún ákvað að taka sénsinn og unga parið lagði sig fram. Þau eru nú búin að vera saman í áratug og eiga saman tvö börn. Tengdamóðirin er lukkuleg með tengdasoninn í dag og segir hann ljúfan sem lamb.

„Ég er voða þakklát fyrir að hafa kynnst honum“

Ingólfur notar reynslu sína til góðs í dag í störfum sínum fyrir Afstöðu. Hann lýsir því hvernig margir sem hafa glímt við fíkn, leiðst út í undirheimana, glíma í raun við svipuð áföll og hermenn. Þetta er fólk sem hefur horft á vini sína deyja, það upplifir svik, það upplifir ofbeldi og lífið snýst mikið um að koma sér í skjöl og lifa af. Leið margra í þetta líf er í raun mótuð strax í æsku sökum uppeldisaðstæðna. Hann ræðir í starfi sínu við fanga um áhrifin sem áföll hafa á heilann og hjálpar fólki að skilja hvers vegna það er eins og það er og hvernig það geti tekið ábyrgð jafnvel þó sökin sé ekki alfarið hjá því sjálfu.

„Þetta prógramm er í raun og veru bara hannað til þess að leyfa þér að skilja: Af hverju er ég svona? Af hverju beit ég ofbeldi? eða: Afhverju er ég að flýja sjálfan mig? Hvað er að gerast í hausnum á mér? Hvað er á bak við þetta? Hver er saga mín og hvernig get ég breytt því?“ 

Hann bendir á að margir fangar séu í raun góðar manneskjur sem hafa villst af leið og misstigið sig. Flestir hafi góðan mann að geyma og vilji virkilega snúa blaðinu við. Það sé þó erfitt skref til að taka. Sumum er ekki hægt að hjálpa, en það sé þó von. Ungir sem aldnir geti tekið skrefið og eignast eðlilegt líf, því hefur Ingólfur kynnst sjálfur. 

 

Nánar má kynna sér sögu Ingólfs í Svona er lífið