Fókus

Drottning hrekkjavökunnar afhjúpar einn svakalegasta búninginn til þessa

Mynd
Heidi Klum.

Fyrirsætan Heidi Klum elskar hrekkjavökuna og leggur gríðarlega vinnu í búningana sem hún klæðist í hrekkjavökupartíi sínu sem hún heldur árlega. Á síðasta ári brá fyrirsætan sér í hlutverk goðsagnaverunnar Medúsu og klæddist handmáluðum búningi sem einkenndist af grænum hreistursfeldi sem endaði í sporðdreka- eða skröltormshala. Í stað hárs voru vélknúnir ormar. Áður hefur hún klætt sig meðal annars sem orm, Lady Godiva, Betty Boop, vampíru, kisu og ávöxt.

Að þessu sinni ákvað Klum að glæða sig sem afskorna hendi, en glöggir aðdáendur tóku eftir því að fyrirmyndin er hennar eigin vinstri hönd, enda má þar sjá eftirmynd af trúlofunarhring hennar og giftingarbandi.

„Ég horfði á hendina á mér og hugsaði: hvernig gæti ég komið líkamanum mínum inn í þessa hendi, það hlýtur að vera hægt,“ sagði Klum um búninginn sem það tók hana á bilinu 5-6 klukkustundir að klæða sig í.

Fyrirsætan hafði gefið aðdáendum vísbendingu í vikunni þar sem hún sagði að búningurinn í ár yrði blóðugur. 

Sjá einnig: Heidi Klum tísar furðulegan hrekkjavökubúning sinn

Mynd
Mynd/Getty

Hér má sjá nokkra af eldri búningum fyrirsætunnar sem hefur ár eftir ár varið titilinn: Drottning hrekkjavökunnar í Hollywood. 

Mynd
Heidi Klum og kærasti hennar, Tom Kaulitz. Mynd/Getty
Heidi Klum og maður hennar, Tom Kaulitz/Getty

 

Mynd
Mynd