Fókus

Ung og hraust kona hneig skyndilega niður – Læknar hafa vaxandi áhyggjur af lúmskum vítamínskorti

Mynd
D-vítamínskortur getur verið lúmskur. Myndir/Skjáskot BBC

Hin 23 ára Saskia Reeves-Priestley var í vinnunni þegar hún varð skyndilega mjög veik og hneig niður. Hún hafði fram að því talið sig vera við hestaheilsu, enda æfði hún knattspyrnu fjórum sinnum í viku og var í góðu líkamlegu formi.

„Ég fékk skyndilega mikinn svima, fann fyrir ógleði og hjartsláttarónotum og mér varð mjög heitt,“ segir Saskia í samtali við BBC.

Við rannsóknir kom í ljós að hún var með alvarlegan D-vítamínskort. Blóðprufur sýndu að magn vítamínsins í líkama hennar var nánast ekkert. Ekki liggur þó fyrir með óyggjandi hætti að skorturinn hafi verið orsök þess að hún hneig niður.

BBC fjallar um vaxandi áhyggjur breskra sérfræðinga af D-vítamínskorti, sérstaklega meðal ungra stúlkna og kvenna. Samkvæmt nýlegum breskum gögnum mældist nær fjórðungur ungmenna á aldrinum 11 til 18 ára með D-vítamínskort.

D-vítamín er nauðsynlegt fyrir heilbrigði beina og myndast að mestu í húðinni fyrir tilstilli sólarljóss. Skortur getur meðal annars valdið þreytu, verkjum í beinum og liðum og í alvarlegum tilfellum beinmeyru, þar sem beinin mýkjast og verða viðkvæmari fyrir brotum.

Suma Uday, sérfræðingur í innkirtlasjúkdómum barna, segir vandann oft fara fram hjá fólki þar sem einkennin geti verið óljós.

„Þetta er í raun að veikja beinin hljóðlega og gera þau mýkri og viðkvæmari fyrir brotum,“ segir hún.

Uday og fleiri sérfræðingar vilja að bresk heilbrigðisyfirvöld endurskoði viðmiðunarmörk D-vítamínskorts svo hægt sé að greina fleiri einstaklinga fyrr.

Prófessor Martin Hewison við Birmingham-háskóla bendir jafnframt á að beinkröm, sjúkdómur sem tengist alvarlegum D-vítamínskorti hjá börnum, sé enn til staðar þrátt fyrir að heil öld sé liðin frá uppgötvun vítamínsins.

Málið á einnig erindi við Íslendinga, enda er sólarljós hér á landi takmarkað stóran hluta ársins og því mikilvægt að tryggja næga inntöku D-vítamíns með fæðu eða bætiefnum.

Saskia tekur nú D-vítamín reglulega og er aftur farin að verja markið á knattspyrnuvellinum, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.