Það tók aðeins fimm sekúndur fyrir stóran hluta beinagrindarbúnings fyrir börn að verða alelda þegar norska dagblaðið VG gerði tilraun á eldfimi hrekkjavökubúninga í samstarfi við slökkviliðið í Ósló.
Niðurstöðurnar vekja athygli nú þegar sjálf hrekkjavakan er á morgun.
VG keypti sjö búninga í mismunandi verslunum og prófaði þá á æfingasvæði slökkviliðsins skammt utan við Ósló.
Sex búninganna bráðnuðu þegar þeir komust í snertingu við opinn eld en sá sjöundi, beinagrindarbúningur frá H&M, varð alelda á aðeins fimm sekúndum
„Þetta er ansi svakalegt að sjá,“ sagði fulltrúi slökkviliðsins þegar hann fylgdist með tilrauninni.
Sömu niðurstöður og í fyrra
Það vekur sérstaka athygli að VG gerði sambærilega tilraun fyrir ári og þá kviknaði einnig mjög auðveldlega í beinagrindarbúningi frá H&M.
„Þetta hefur ekkert batnað, nei. Það er gjarnan þessi blanda af bómull og pólýester sem kviknar auðveldast í,“ segir Sigurd Folgerø Dalen, upplýsingafulltrúi slökkviliðsins í Ósló.
Beinagrindarbúningurinn er úr 80 prósent bómull og 20 prósent pólýester. Hinir búningarnir voru að mestu úr gerviefnum sem bráðnuðu við hitann.
Dalen varar við því að bráðið plastefni geti fest við húðina og valdið alvarlegum brunasárum. Þótt logarnir slokkni fljótt geti skaðinn þegar verið skeður.
Hann tekur þó fram að prófanirnar hafi farið fram við stýrðar aðstæður og því sé ekki víst að búningarnir myndu brenna með sama hætti ef börn væru í þeim.
H&M svarar fyrir sig
VG vekur einnig athygli á því að enga viðvörun um opinn eld var að finna á beinagrindarbúningnum frá H&M. Þá var hann sá eini af búningunum sjö þar sem ekki fannst CE-merking.
H&M segir skýringuna vera þá að flíkin teljist ekki eiginlegur hrekkjavökubúningur heldur venjulegur barnafatnaður með hrekkjavökumyndum. Aðrar öryggiskröfur gilda um slíkan fatnað en búninga, sem teljast leikföng.
VG bendir hins vegar á að flíkin hafi verið til sölu ásamt öðrum hrekkjavökubúningum og að þessi greinarmunur sé því ekki endilega augljós fyrir foreldra.
Varar sérstaklega við kyndlum
Í umfjöllun VG kemur fram að 398 börn undir 18 ára aldri hafi verið lögð inn á norsk sjúkrahús vegna brunasára á síðasta ári, þar af 320 yngri en tíu ára. Ekki liggur þó fyrir hversu mörg þessara slysa tengdust því að kviknaði í fatnaði.
Dalen ráðleggur foreldrum að láta börn klæðast ull undir hrekkjavökubúningunum. Ull sé síður eldfim en mörg önnur efni og bráðni ekki við hita eins og pólýester.
Hann varar jafnframt sérstaklega við logandi kyndlum við innganga og í innkeyrslum húsa þar sem börn ganga á milli húsa í leit að sælgæti. Betra sé að nota LED-ljós.
Ef kviknar í búningi þurfi að leggja viðkomandi strax niður og kæfa logana, meðal annars með því að láta hann velta sér eftir jörðinni.
„Þá skipta sekúndurnar gríðarlega miklu máli,“ segir Dalen. Hrekkjavakan er yfirleitt ekki sérstaklega annasamur dagur hjá slökkviliðinu en Dalen segir engu að síður fulla ástæðu til að taka eldhættuna alvarlega.