Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, stendur nú frammi fyrir málsókn vegna skulda upp á fleiri milljónir króna.
Málsóknin kemur í kjölfar þess að meðlagsgreiðslur frá Spears hættu að berast, en Federline hafði um árabil fengið frá henni sem nemur allt að fimm milljónum íslenskra króna á mánuði.
Bandaríski slúðurmiðillinn Page Six greinir frá málinu og vísar til dómsgagna sem miðillinn hefur undir höndum.
Samkvæmt þeim hefur City National Bank höfðað mál gegn Federline og krefst greiðslu á skuldum sem nema að minnsta kosti 117.704 Bandaríkjadölum, eða rúmum 14 milljónum íslenskra króna á núverandi gengi. Skuldirnar tengjast kreditkorti, persónulegri lánalínu og yfirdráttarheimild Federline.
Federline er sagður hafa gert lánssamning við bankann í lok nóvember 2024, um það leyti sem síðustu meðlagsgreiðslurnar frá Britney Spears bárust honum.
Samkvæmt málshöfðuninni átti Federline að greiða upp kreditkortaskuld sína fyrir ágúst 2026. Persónuleg lánalína hans var á gjalddaga í júní 2025 og yfirdráttarheimildin tveimur mánuðum fyrr.
Bankinn krefst þess ekki aðeins að skuldirnar verði greiddar heldur einnig uppsafnaðir vextir.
Federline og Spears eiga saman tvo syni, Sean Preston og Jayden James. Eftir skilnað þeirra árið 2007 fékk Federline um árabil 40 þúsund dali á mánuði í meðlag, en sú upphæð lækkaði síðar í 20 þúsund dali þegar eldri sonurinn varð 18 ára. Greiðslunum lauk síðan að fullu þegar yngri sonurinn lauk framhaldsskólanámi.
Í ævisögu sinni, You Thought You Knew, hélt Federline því fram að meðlagsgreiðslurnar hefðu vart dugað til að standa undir kostnaði við uppeldi drengjanna. Hann sagði meðal annars að öryggisgæsla og sá lífsstíll sem synirnir hefðu vanist hjá móður sinni hefðu kostað meira en 40 þúsund dali á mánuði.
„Peningarnir voru nánast horfnir um leið og þeir bárust,“ skrifaði hann í bókinni.