Tónlistarmaðurinn Stevie Wonder reynir nú að bera fyrrverandi kærustu út húsi í hans eigu. Hún hefur búið þar leigulaust í fjörutíu ár.
Miðillinn TMZ greinir frá þessu.
Hinn 76 ára gamli soul tónlistarmaður Stevie Wonder er nú harðri lagalegri baráttu við að bera fyrrverandi kærustu sína, Carmen Efferson, út úr húsi sínu í Los Angeles. Efferson hefur búið leigulaust í húsinu síðan árið 1988.
Borgaði bara hita og rafmagn
Lítið er vitað um samband Wonder og Efferson, nema að það stóð yfir í nokkur ár á níunda áratugnum. Wonder aðstoðaði hana við að komast í verkefni í tónlistarbransanum og þegar sambandinu lauk gaf hann henni munnlegt loforð um að fá að búa í einu húsinu hans án þess að borga neitt fyrir það nema hita og rafmagn. Síðan þá hefur Wonder gifst í tvígang.
Samkomulagið hafði haldið vel allt þar til í sumar þegar lögmenn Wonder tilkynntu Efferson að hún yrði að hleypa skoðunarmönnum frá tryggingarfélagi inn í húsið. Því hafnaði Efferson og sakaði Wonder um áreiti.
„Þið hafið ekki leyfi mitt til að stíga inn á lóðina, af neinum ástæðum. Ef þú, eða einhverjir aðrir fulltrúar, reynið að fara inn á heimili mitt eða farið inn á lóðina án leyfis, mun ég tafarlaust hafa samband við lögregluna,“ svaraði Efferson skrifleiðis.
Vill rifta munnlegu samkomulagi
Nú, næstum fjórum áratugum seinna, vill Wonder fá húsnæðið aftur og vill koma gömlu kærustunni út en hún ætlar sig hvergi að hreyfa. Hefur hann stefnt henni og krafist þess að hún verði borin út.
Í kröfu Wonder segir að hinum munnlega samningi þeirra sé rift og að hann muni krefja hana um greiðslur fyrir lögfræðikostnað og allan kostnað af umframsetu hennar í húsinu. Hafi hún 30 daga til að hypja sig. Sá frestur rann út í lok ágúst.
Efferson lætur hins vegar ekki segjast og ætlar ekki að hlíða. Nýlega birtust myndir af henni að vökva garðinn í mestu makindum. Segir hún hverjum sem heyra vill að Wonder hafi gefið henni húsið þó hún hafi aldrei fengið afsalið fyrir því. Húsið sé algjörlega hennar og um tíma hafi móðir hennar búið þar líka.