Fókus

Skjal undirritað af Davíð Oddssyni bjargaði Didda í Sovétríkjunum: „Ég ákvað að við værum bara að beita leynivopni og drógum upp þetta plagg“

Mynd
Sniglabandið.

Hestur sprakk framan á hljómsveitarbíl, biðröð myndaðist fyrir utan Gauk á Stöng á sunnudagskvöldum, bréf frá borgarstjóra bjargaði manni í Sovétríkjunum, útvarpsþættirnir sem urðu að plötum og lagið sem varð hluti af íslenskum jólum. Í viðtali við Popparasögur rifja Diddi, Friðþjófur Ísfeld, og Skúli Gautason upp ótrúleg atvik úr sögu Sniglabandsins.

Saga Sniglabandsins er full af sögum sem hljóma stundum eins og skáldskapur. Hljómsveitin hefur verið starfandi frá árinu 1985. Í fjórum þáttum í hlaðvarpinu Popparasögur segja Diddi og Skúli frá ýmsu úr sögu sveitarinnar.

Hesturinn í Bólstaðarhlíðarbrekku

Þegar Sniglabandið var að hasla sér völl var sveitaballabransinn enn mjög stór hluti af íslensku tónlistarlífi. Hljómsveitir ferðuðust um landið, spiluðu á böllum og þurftu að koma bæði sjálfum sér og hljóðfærunum á milli staða.

Sniglabandið keypti sér bíl sem var reyndar ekki hefðbundinn hljómsveitarbíll heldur gamall Mercedes-Benz sem áður hafði verið notaður sem matarvagn. Það var þó ekki útlitið sem gerði bílinn eftirminnilegan heldur það sem gerðist á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar.

Eitt sinn var bílnum ekið niður Bólstaðarhlíðarbrekku hjá Húnaveri í myrkri. Bíllinn var fullur af hljóðfærum, enda höfðu þeir einnig tekið græjur Stuðkompanísins með í ferðina. Þegar bíllinn loks náði almennilegum hraða stóð hestur allt í einu á miðjum veginum. „Og hann kemur þarna á siglingu niður Bólstaðarhlíðarbrekkuna og nær loksins einhverjum smá hraða á bílinn,“ segir Skúli í viðtalinu.

Hann lýsir því næst hvernig bíllinn lenti á hestinum og hversu óhugnanleg sjónin var. Innyflin lentu meðal annars yfir vélarhúsi bílsins. Þrátt fyrir höggið tókst ökumanninum að halda bílnum á veginum en lyktin og ummerki eftir slysið ferðuðust með bílnum einhvern tíma á eftir.

Mynd

Gaukur á Stöng varð að leiksviði

Sniglabandið þróaði snemma sinn sérstaka stíl á tónleikum. Í stað þess að einbeita sér eingöngu að því að flytja lög eins og þau hljómuðu á plötum fór sveitin að leika sér með efnið, spjalla við áhorfendur og bregðast við stemningunni í salnum.

Þessi nálgun fékk sérstaklega gott rými til að þróast á Gauki á Stöng. Sveitin hafði áður spilað mikið á Fimmunni, þar sem meðlimirnir gátu þróað þessa hugmynd um að tónleikarnir væru ekki bara tónlistarflutningur heldur líka samskipti og grín. „Það var ekkert endilega málið að spila lagið eins og það heyrðist á plötunni, heldur bara gera eitthvað grín og gera eitthvað gaman og svona eitthvað flipp,“ segir Skúli.

Þeir spiluðu á Gauknum á sunnudagskvöldum sem var í fyrstu ekki augljóslega eftirsóttasti tíminn en það breyttist fljótt. Sveitin fann að rólegri kvöldin gáfu henni meiri möguleika á að ná sambandi við gestina heldur en um helgar. „Það gerðist mjög hratt að það fór frá því að það voru ekki margir á sunnudagskvöldum og yfir í það að vera biðröð klukkan sjö út úr húsinu,“ rifjar Skúli upp.

Tónleikarnir þróuðust í sýningu þar sem óvæntir karakterar, spuni og samskipti við salinn urðu jafnmikilvæg og lögin sjálf. Meðlimir sveitarinnar þurftu ekki endilega að vera með allt úthugsað fyrirfram. Hugmyndirnar urðu til á milli manna og voru prófaðar á sviðinu. Það varð síðar mikilvægur hluti af því sem gerði útvarpsþættina þeirra sérstaka.

Mynd

Útvarpsþættirnir urðu að tónlist

Útvarpsþættir Sniglabandsins, sem voru þeir vinsælustu á landinu um margra ára skeið, voru meira en vettvangur fyrir grín og tónlist. Þar varð til efni sem annars hefði líklega aldrei orðið til, meðal annars lög sem voru samin út frá hugmyndum hlustenda.

Einn fastur liður fólst í því að síðasti hlustandinn sem hringdi inn fékk að ákveða ákveðna umgjörð um lag sem sveitin samdi síðan. „Hann fékk að velja svona forskrift að lagi sem við síðan sömdum og byrjuðum næsta þátt á eftir á því að flytja,“ segir Skúli. Úr þessu varð til fjöldi laga. Sum voru síðar tekin upp í hljóðveri, unnið frekar með þau og gefin út á plötum. Þannig lifðu hugmyndir úr beinni útvarpsvinnu áfram eftir að þættinum lauk.

Platan RÚVtops er full af lögum sem urðu til í þessu ferli. Í Popparasögum lýsir Diddi því hvernig önnur platan var í raun samsettur útvarpsþáttur, þar sem mörg atriðin röðuðust saman með óvenju vel heppnuðum hætti. „Það var einn þáttur sem varð einhvern veginn, toppaði sig bara hvert einasta atriði í þættinum,“ segir hann.

Mynd

Borgarstjóri til bjargar

Árið 1989 hélt Sniglabandið til Sovétríkjanna. Ferðin hefur orðið ein af eftirminnilegustu sögunum í sögu sveitarinnar og í viðtalinu rifja Diddi og Skúli upp bæði menningarsjokkið og samskipti þeirra við yfirvöld.

Eitt alvarlegasta atvikið varð þegar Diddi var stöðvaður af lögreglumanni við lítinn skúr við þjóðveginn. Lögreglumaðurinn reiddist mjög, var mjög æstur og miðaði byssu á Didda. Skúli segir að þegar þeir hinir komu að hafi ástandið verið orðið mjög alvarlegt. „Diddi var bara sveittur og titrandi og gaurinn, þessi lögga, hann var bara froðufellandi af bræði og þetta var bara mjög alvarlegt ástand þarna,“ segir hann.

Þá kom sér vel að þeir höfðu fengið ráð fyrir ferðina. Þeir áttu að hafa meðferðis formlegt plagg með undirskrift og helst kringlóttum, bláum stimpli. Þeir höfðu fengið slíkt skjal frá Davíð Oddssyni, sem þá var borgarstjóri Reykjavíkur.

Skúli ákvað að reyna að nota plaggið til að róa lögreglumanninn. Hann dró það fram og sýndi honum, eins og þeir væru í opinberum erindagjörðum. „Og ég ákvað að við værum bara að beita leynivopni og drógum upp þetta plagg,“ segir hann.

Viðbrögðin voru skjót og að sögn Skúla breyttist framkoma lögreglumannsins um leið og hann sá skjalið. „Hann sá þetta plagg þá bara koðnaði í honum allt í einu.“

Mynd

Jólahjól varð hluti af þjóðarsálinni

Þótt Sniglabandið hafi átt sér langa sögu og gefið út fjölda laga er eitt lagið orðið mun stærra en hin: Jólahjól. Lagið kom fyrst út árið 1984 í flutningi Skúla, áður en hljómsveitin varð til í þeirri mynd sem fólk þekkir í dag. Síðar kom upp sú hugmynd að útsetja lagið í rokkaðri búningi og fá Stefán Hilmarsson, þáverandi söngvara Sniglabandsins, til að syngja það.

Stefán var ekki alveg sannfærður í fyrstu, meðal annars vegna þess hve hátt lagið lá. Skúli segir að hann hafi þurft að hvetja hann áfram, en þegar Stefán var kominn í gírinn bætti hann um betur og söng rödd ofan við sína eigin.

Nýja útgáfan varð skyndilega stórsmellur og fór hátt á vinsældalistum. Í viðtalinu segir Skúli að lagið sé langvinsælasta lag sveitarinnar, með milljónir hlustana á Spotify, á meðan næsta lag sé með aðeins rúmlega hundrað þúsund. „Þetta er orðið svona partur af þjóðarsálinni,“ segir hann.

Í þessu fjögurra hluta hlaðvarpi fara þeir Diddi og Skúli yfir þetta og svo margt fleira sem hefur gerst á rúmlega fjörutíu ára ferli Sniglabandsins.