Fókus

Kynlífsleikföngin í ferðatöskunni afhjúpuðu leyndarmál milljónamæringsins

Mynd
Mynd/Getty

Kona sem hefur starfað á heimilum hjá nokkrum af ríkustu fjölskyldum Bretlands í tæp 30 ár hefur svipt hulunni af því sem gerist á bak við luktar dyr á lúxusheimilum þeirra.

Í nafnlausri frásögn sem birtist á vef Daily Mail lýsir hún meðal annars framhjáhaldi, ótrúlegri matarsóun, fíkniefnaneyslu og kröfum vinnuveitenda sem virðast stundum engin takmörk eiga sér.

Konan er 55 ára og hefur meðal annars starfað fyrir þekkt fólk úr fjölmiðla- og skemmtanaiðnaðinum. Hún segir launin hafa verið afar góð, en þegar best lét þénaði hún sem nemur um 25 milljónum íslenskra króna á ári. Starfið hafi hins vegar komið niður á einkalífi hennar enda vinnutíminn oft langur.

„Vandamál þeirra verða mín vandamál, fríin þeirra verða á minni ábyrgð og ég þarf meira að segja að kljást við afleiðingarnar af framhjáhaldi þeirra,“ segir hún.

Kynlífsleikföngin tilheyrðu ástkonunni

Eitt eftirminnilegasta atvikið átti sér stað þegar konan starfaði fyrir auðugan, kvæntan mann sem bjó í London á meðan eiginkona hans dvaldi í öðru landi.

Maðurinn ferðaðist mikið og sá konan um að pakka í ferðatöskur hans og taka upp úr þeim þegar hann sneri heim. Dag einn rakst hún á safn kynlífsleikfanga í farangrinum.

Hún ákvað að spyrja manninn hvort leikföngin hefðu orðið eftir í töskunni fyrir mistök.

„Ó, nei, nei, nei. Þetta er fyrir ástkonuna mína,“ svaraði hann að sögn konunnar.

Maðurinn hafði áður gert henni ljóst að hún ætti að upplýsa hann um einkalíf eiginkonu hans og dætra, meðal annars um átröskun eiginkonunnar og kynhneigð eldri dótturinnar. Á sama tíma átti hún að halda framhjáhaldi hans og leynilegum ferðum til Las Vegas leyndum fyrir fjölskyldunni.

Mánuði eftir að kynlífsleikföngin fundust bauð maðurinn henni sjálfri á stefnumót. Hún hafnaði boðinu og hætti störfum tveimur mánuðum síðar.

Morgunverður fyrir stórfé endaði í ruslinu

Konan lýsir einnig gríðarlegri sóun á heimilum ríka fólksins.

Hún starfaði meðal annars fyrir vellauðuga fjölskyldu sem eyddi fríum sínum í kastala við Miðjarðarhafið. Þar var á hverjum morgni útbúinn glæsilegur morgunverður fyrir tólf manns þar sem miklu var kostað til.

Á borðum voru nýbökuð brauð, sætabrauð, ávextir, ostar, álegg og ýmiss konar sérfæði. Mikið af matnum var hins vegar aldrei snert og endaði í ruslinu.

„Þetta var morgunverðarhlaðborð á við það sem maður býst við á lúxushóteli, ekki hjá einni fjölskyldu og nokkrum vinum hennar,“ segir hún.

Ældu yfir skóna eftir sex mánaða leit

Konan segist einnig hafa starfað fyrir þekkta fjölskyldu sem sýndi sig á samfélagsmiðlum sem venjulegt og jarðbundið fólk. Raunveruleikinn hafi verið annar.

Eiginkonan hafi reglulega krafist þess að hún hefði samband við fyrirtæki og vörumerki til að útvega sér ókeypis vörur. Á sama tíma hafi hún eytt sex mánuðum í að finna sjaldgæfa hönnunarstrigaskó handa eiginmanninum.

Morguninn eftir að skórnir bárust ældi maðurinn yfir þá.

Í öðru starfi þurfti hún að leysa úr vandræðum poppstjörnu og fjölskyldu hennar eftir helgi sem hafði farið í mikið sukk. Bæði hjónin höfðu týnt bíllyklum sínum og sökuðu hvort annað um óhóflega fíkniefnaneyslu. Konan þurfti því að útvega einkabílstjóra til að koma fjölskyldunni til London og eiginmanninum í hljóðver í Wales.

Tók aðeins þriggja vikna fæðingarorlof

Þrátt fyrir há laun og ýmis fríðindi segir konan að starfið hafi haft alvarleg áhrif á einkalíf hennar.

Þegar hún eignaðist dóttur sína tók hún aðeins þriggja vikna fæðingarorlof þar sem vinnuveitandi hennar taldi sig ekki geta verið án hennar. Hún segist meira að segja hafa gefið afleysingamanneskju sinni fyrirmæli á meðan hún var í fæðingu.

Hjónaband hennar entist ekki og skildi hún við eiginmann sinn þegar dóttir þeirra var tveggja ára.

„Ég hafði í raun verið meiri eiginkona konunnar sem ég vann fyrir en eiginmanns míns,“ segir hún.

Hún segir að þótt hún hafi stundum upplifað sig sem hluta af fjölskyldum vinnuveitenda sinna hafi hún að lokum áttað sig á því að sambandið væri ekki gagnkvæmt.

„Ég blekki mig aldrei með því að halda að vinnuveitendur mínir hafi litið á mig sem eitthvað annað en starfsmann.“

Fram kemur í umfjöllun Daily Mail að ákveðnum upplýsingum í frásögninni hafi verið breytt til að vernda persónuupplýsingar þeirra sem koma við sögu.