Michael Stücke, frá Löhne í vesturhluta Þýskalands, bjargar samkynhneigðum hrútum frá sláturhúsinu. Síðan 2023 hefur hann framleitt ull úr þeim sem kallast Regnbogaull.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Michael, sem er 52 ára gamall, hefur verið sauðfjárbóndi síðan árið 1995 en árið 2023 fór hann að einbeita sér að því að bjarga samkynhneigðum hrútum. Hann er sjálfur samkynhneigður.
8 til 10 prósent
Um 8 til 10 prósent allra hrúta eru samkynhneigði, neita að makast með ám en vilja þess í stað makast með öðrum hrútum. Þá eru á bilinu 18 til 30 prósent allra hrúta sem sýna einhverja hneigð til sama kyns.
Vegna þess að þeir neita að makast með ám eru samkynhneigðir hrútar yfirleitt sendir beint í sláturhúsið þar sem þeir þykja ekki hafa neitt fjárhagslegt gildi.
Hugmyndina að verkefninu Regnbogaull var kona að nafni Nadia Leytes, vinkona Michael sem er upprunalega frá Rússlandi. Nadia þekkir vel ofsóknirnar sem hinsegin fólk hefur mátt þola í Rússlandi og þegar hún heyrði af örlögum samkynhneigðra hrúta stakk hún upp á því við Michael að bjarga lífum þeirra.
Safnaði í hjörð
Michael tók vel í þetta og byrjaði að safna hjörð. Hann hafði samband við aðra sauðfjárbændur á svæðinu og lét þá vita að hann myndi taka við öllum hrútum sem neituðu að makast með ám.
„Þegar við byrjuðum með þetta þá voru viðbrögðin mjög misjöfn. Sumt fólk sagði að við værum rugluð. Hvað er að frétta? En svo áttuðu margir sig á því að okkur er alvara og hvert einasta dýr hérna er prófað,“ segir Michael. Það er hrútarnir eru settir í stíur með ám á fengitíma. Þá kemur hið sanna fljótt í ljós. „Við sjáum það á nokkrum mínútum.“
Nýjasta tíska
En samkynhneigðir hrútar eru langt því frá verðlausir eins og verkefnið sýnir. Michael prjónar mikið sjálfur og hefur ullin frá býli hans náð töluverðum vinsældum, einkum hjá hinsegin fólki. Býlið hefur farið í samstarf við stefnumótaforritið Grindr og ullin notuð í fatnað sem sýndur hefur verið á tískusýningum. Hagnaðurinn fer í að styðja við samtökin LSVD+, stærstu réttindasamtök hinsegin fólks í Þýskalandi.