Vinsæl megrunarlyf á borð við Mounjaro og Zepbound geta haft veruleg áhrif á getu fólks til að stunda langhlaup. Nokkrir maraþonhlauparar hafa lýst erfiðri reynslu af lyfjunum, meðal annars vegna ógleði, orkuleysis og óvenjulega hás hjartsláttar við áreynslu.
Fjallað er um málið í The Guardian, þar sem rætt er við hlaupara og sérfræðinga um áhrif svokallaðra GLP-1-lyfja á þolþjálfun.
Lyfin hafa notið sívaxandi vinsælda á undanförnum árum en þau draga meðal annars úr matarlyst og stuðla að þyngdartapi. Það getur reynst vandasamt fyrir fólk sem stundar langhlaup og þarf að innbyrða mikla orku til að standa undir álaginu.
Varð hræðilega veik
Keri, kona á sextugsaldri sem hefur lokið fjórum maraþonhlaupum og fleiri hálfmaraþonhlaupum, lýsir því hvernig fyrsta keppnishlaup hennar eftir að hún hóf notkun tirzepatíðs reyndist henni afar erfitt.
Hún hafði tekið fyrsta skammtinn af lyfinu innan við viku fyrir hlaupið og glímdi við mikla ógleði alla leiðina. Hún átti meðal annars erfitt með að halda niðri orkugeli sem hlauparar nota gjarnan til að viðhalda orkunni.
„Eftir þetta hálfmaraþon varð ég hræðilega veik,“ segir hún.
Annar hlaupari, 44 ára Bandaríkjamaður að nafni Steve, lýsir svipaðri reynslu. Hann hafði áður auðveldlega getað hlaupið 8-10 kílómetra en eftir að hann hóf inntöku lyfjanna þurfti hann að taka sér ítrekuð hlé. Hjartslátturinn fór jafnframt mun hærra en hann átti að venjast.
Vara við langvarandi orkuskorti
Melanie Jay, prófessor við NYU Grossman-læknadeildina, segir að GLP-1-lyf geti hækkað hvíldarpúls um tvö til tíu slög á mínútu. Enn skorti þó rannsóknir á áhrifum nýrri lyfja á hjartslátt við líkamlega áreynslu.
Claire Shorenstein, næringarfræðingur sem sérhæfir sig í næringu íþróttafólks, varar sérstaklega við því að hlauparar fái ekki næga orku vegna minnkaðrar matarlystar.
Langvarandi orkuskortur getur meðal annars leitt til minnkaðrar beinþéttni, veikara ónæmiskerfis og hormónatruflana.
Sérfræðingar eru þó ekki á einu máli um hvort forðast eigi lyfin alfarið á meðan fólk undirbýr sig fyrir langhlaup. Sumir telja að hægt sé að samræma notkun þeirra og þolþjálfun, svo framarlega sem tryggt sé að líkaminn fái næga næringu og vökva.
Meghann Featherstun, bandarískur næringarfræðingur sem hefur unnið með maraþonhlaupurum á GLP-1-lyfjum, segir reynsluna þó oft erfiða.
„Ég hef fengið tölvupóst frá hverjum einasta einstaklingi sem hefur verið á þessum lyfjum. Skilaboðin eru alltaf á sömu leið: „Ég er hætt. Ég þoli þetta ekki lengur,“ segir hún.