Fókus

Veitingastaðir banna síma við matarborðið – Bjóða fjölskyldum óvenjulegan valkost

Mynd
Það freistar margra að setjast niður við matarborðið með snjallsímann í höndunum. Mynd/Pexels

Það verður ekki lengur hægt að fela sig á bak við símaskjáinn þegar fjölskyldan sest niður til að borða á ákveðnum veitingastöðum á ítölsku eyjunni Sardiníu.

Þar er verið að hrinda af stað skemmtilegu tilraunaverkefni þar sem farsímarnir fá frí og fjölskyldumeðlimir eru hvattir til að gera nokkuð sem virðist stundum vera á undanhaldi – að tala saman. Breska blaðið The Guardian skýrir frá þessu.

Alls hafa 15 veitingastaðir samþykkt að taka þátt í verkefninu sem hefst í næstu viku og stendur yfir í mánuð. Fjölskyldur sem heimsækja staðina verða beðnar um að afhenda farsíma sína og önnur raftæki áður en þær setjast að snæðingi.

Verkefnið ber heitið A tavola senza schermi, eða „Við matarborðið án skjáa“, og er hugmynd Önnu Cau, umboðsmanns barna á Sardiníu. Markmiðið er að draga úr skjánotkun barna og hvetja fjölskyldur til að njóta samverunnar án þess að tilkynningar, samfélagsmiðlar og myndbönd steli athyglinni.

Leikir í stað skjáa

En hvað á fólk eiginlega að gera við matarborðið þegar síminn er víðs fjarri?

Veitingastaðirnir hafa hugsað fyrir því. Þegar fjölskyldur hafa lagt tækin frá sér fá þær sérstakan pakka með leikjum og teikniverkefnum sem ítölsk samtök barnalækna hafa útbúið.

Leikirnir eiga að koma samtölunum af stað og hvetja börn til að segja foreldrum sínum frá deginum, upplifunum sínum og öðru sem þeim liggur á hjarta.

Í pakkanum er einnig að finna upplýsingar um áhrif óhóflegrar skjánotkunar og ráðleggingar til foreldra um hvernig hægt sé að setja skynsamleg mörk á samfélagsmiðlanotkun heima fyrir.

Cau segir að tilgangurinn sé ekki að banna allt sem tengist tækninni heldur að skapa umhverfi þar sem foreldrar og börn eiga auðveldara með að tengjast.

Barni rétt tæki til að það hafi hljótt

Emanuele Frongia, formaður samtaka veitinga- og ferðaþjónustufyrirtækja á Sardiníu, segir að veitingastaðirnir hafi tekið hugmyndinni fagnandi.

Hann bendir á að það að fara út að borða eigi að vera tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samverunnar. Raunin sé hins vegar oft önnur.

„Við sjáum í auknum mæli að á þessum stundum víkja líflegar samræður fyrir langvarandi þögn á meðan fólk horfir á tækin sín. Oft er barni rétt tæki einfaldlega til að það hafi hljótt,“ segir Frongia.

Ef tilraunin gengur vel er stefnt að því að fleiri veitingastaðir taki þátt, þó að þátttakan verði áfram valfrjáls.