Heimurinn bíður með eftirvæntingu eftir þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð (einnig þekkt sem reta) sem lyfjaframleiðandinn Eli Lilly er nú með í klínískum prófunum. Eftirvæntingin er raunar svo mikil að það er nú þegar framleitt og selt á svokölluðum gráum markaði. Þeir sem kaupa reta á gráum markaði vita í raun ekkert hver framleiddi lyfið og hversu áþekkt það er lyfinu sem Eli Lilly er að þróa. Áhættan sem neytendur taka á sig er því nokkur enda sætir grái markaðurinn engu formlegu eftirliti og því ekkert sem tryggir öryggi framleiðslunnar eða að neytendur séu í raun að fá raunverulega útgáfu af lyfinu eftirsótta.
Þekktustu þyngdarstjórnunarlyfin í dag eru svokölluð GLP-1-lyf á borð við Ozempic og Wegovy sem margir Íslendingar þekkja vel, en lyfin minnka matarlyst, hægja á meltingu og jafna blóðsykur. Retatrútíð gengur lengra og virkar á þrjá ólíka viðtaka í líkamanum, GLP-1, GIP og glúkagon. Lyfið hefur þar með alla kosti Ozempic en eykur auk þess losun insúlíns, eykur brennslu, ýtir undir niðurbrot fitu og hjálpar til við úrvinnslu næringarefna og efnaskipti. Sumir hafa lýst reta sem Ozempic á sterum.
Nú liggja fyrir niðurstöður fyrstu rannsóknarinnar þar sem virkni reta er borin saman við Ozempic. Frá þessu greindi Eli Lilly í gær en niðurstaðan var afdráttarlaus – þeir sem tóku inn retatrútíð áttu auðveldara með að léttast en þeir sem tóku Ozempic.
Sjúklingar með sykursýki II sem voru á hæsta skammti af Ozempic misstu að meðaltali 9,5 kíló á 18 mánuðum. Þeir sem tóku reta misstu að meðaltali 20 kíló á sama tímabili.
Eli Lilly telur rannsóknina sýna að retatrutide gæti markað byltingu í meðferð einstaklinga með áunna sykursýki, offitu og aðra efnaskiptasjúkdóma. Sumir telja jafnvel að árangur retatrútíðs gæti gert efnaskiptaaðgerðir á borð við magahjáveitu óþarfar.
Lyfjaframleiðandinn stefnir á að óska eftir söluleyfi fyrir lyfið snemma á næsta ári og ef vel gengur gæti það komið á almennan markað síðar á árinu en framleiðandinn ætlar að lyfinu verði ávísað við ýmsum kvillum, svo sem offitu, kæfisvefni og slitgigt í hnjám.
Hvað aukaverkanir varðar þá voru niðurstöður rannsóknarinnar áþekktar hvað varðaði notendur Ozempic og retatrútíðs. Notendur reta voru aðeins líklegri til að glíma við niðurgang á meðan notendur Ozempic voru aðeins líklegri til að greina frá hægðatregðu. Notendur retatrútíðs voru einnig aðeins líklegri til að glíma við sjaldgæfa aukaverkun sem kallast tilfinningatruflun (e. dysesthesia) sem veldur náladofa og sviðatilfinningu þar sem fólki finnst eins og húðin standi ljósum logum.
Niðurstöður rannsóknarinnar hafa ekki enn verið ritrýndar og birtar í læknatímariti, en Eli Lilly ákvað engu að síður að greina frá rannsókninni í aðdraganda ársfjórðungsuppgjörs fyrirtækisins sem verður kynnt á fimmtudaginn.
Rétt er að ítreka að það retatrútíð sem nú er selt á samfélagsmiðlum og víðar kemur ekki úr smiðju Eli Lilly. Neytendur geta því hvorki treyst því að lyf sem þeir kaupa á gráum markaði sé öruggt eða að það skili sama árangri og klínísku prófanirnar hjá Eli Lilly.