Verslunarkeðjan JYSK hér á landi fer óhefðbundna leið í nýjustu færslu sinni á Facebook þar sem fyrirtækið skólar Mörtu Maríu Winkel, blaðamann Smartlands á Morgunblaðinu, til:
„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu. Við erum nefnilega með mikið úrval af hillum sem eru fallegar beint úr pakkanum og það þarf ekkert að vera að vesenast við að lakka til að gera þær álitlegar. Kíktu bara til okkar Marta, við hjálpum þér að finna þína réttu hillu í lífinu! Alltaf velkomin Smartland Mörtu Maríu, hlökkum til að sjá þig!
Vísar færslan til nýlegrar fyrirsagnar og fréttar á Mbl. Fyrirsögnin hljóðar svo „Það er ekki hægt að hafa einhverja JYSK-hillu á veggnum.“
Orð sem Marta María lét falla í spjalli sínu við annan blaðamann Morgunblaðsins, Eddu Gunnlaugsdóttur, en þær setjast oft niður í mynd og ræða ýmislegt sem á þeim brennur. Í spjallinu segist Marta María njóta sín best þegar hún er að lakka húsgögn og nýbúin að lakka borðstofuborðið sitt grænt. Segir hún síðan:
„En það þarf að vera ákveðinn glæsileiki í húsgögnunum í kring. Það er ekki hægt að hafa einhverja Jysk-hillu á veggnum.“