Fókus

Myndband ferðamanns frá Íslandi slær í gegn – Tæplega 8 milljónir áhorfa

Mynd
Skjáskot/TikTok

Það er alltaf gaman að sjá ferðamenn deila efni frá ferðalögum sínum um Ísland. Umfjöllunarefnin eru alls konar, allt frá fegurð landsins yfir í matvöruverð í Bónus og hárvandræði eftir Bláa lónið.

Sum vekja mikla athygli hérlendis en það kemur fyrir að sum myndbönd verði „viral“. Það á við um myndband frá TikTok-notandanum @teeceeisme0825. Hún var stödd á klakanum fyrr í mánuðinum en eins og landsmenn vita þá hefur október ekki verið skemmtilegasti mánuðurinn fyrir útiveru. 

Hún birti stutt myndband af sér standa úti með hettu í brjáluðu roki. „Vindurinn er ekki fyrir alla! Gleymdi húfunni minni,“ sagði hún með myndbandinu, sem hefur fengið yfir 7,6 milljónir áhorfa og hafa 1,2 milljónir manns líkað við það.

Horfðu á það hér að neðan.