Fókus

Móðir fékk skammir frá skólanum fyrir að mæta í náttfötum að sækja barn - „Hvenær byrjaði skólinn að setja foreldrum klæðaburðarreglur?“

Mynd
Móðirin var bálreið eftir að hafa fengið bréfið frá aðstoðarskólastjóranum. Mynd/Getty

Móðir í bresku borginni Liverpool er bálreið eftir að hún fékk vandræðalegt bréf frá grunnskóla barnsins síns. Var henni bannað að mæta í náttfötunum þegar hún kemur til að sækja það.

Blaðið The Liverpool Echo greinir frá þessu.

Bresk kona er alls ekki sátt við bréf sem hún fékk frá grunnskóla barnsins síns eftir að hún hafði sótt það. Var hún skömmuð fyrir að mæta í náttfötunum á lóð skólans.

Vandræðalegt fyrir barnið

„Við höfum tekið eftir því að þú hefur í nokkur skipti mætt í skólann til að sækja barnið þitt klædd í náttföt eða annan svefnfatnað,“ segir í bréfinu. „Þó við gerum okkur grein fyrir því að skólalokin geti verið annasamur tími og fólk hafi ekki alltaf mikinn tíma, biðjum við ykkur vinsamlegast um að klæða ykkur á viðeigandi hátt þegar þið komið inn á skólalóðina.“

Enn fremur var sagt að klæðnaður móðurinnar væri farinn að verða vandræðalegur fyrir barnið sjálft.

„Nokkrir nemendur hafa látið ummæli falla, sem hefur orðið til þess að barninu þínu líður illa eða finnur fyrir vandræðalegheitum. Við viljum tryggja að öllum nemendum okkar líði vel og finni til öryggis þegar skóladegi lýkur,“ segir í bréfinu sem aðstoðarskólastjórinn skrifaði. 

Greip lyklaborðið

En móðirin tók þessu bréfi hins vegar ekki vel. Þess í stað greip hún lyklaborðið og lét gamminn geisa á samfélagsmiðlum.

„Hvenær byrjaði skólinn að setja foreldrum klæðaburðarreglur?“ spyr hún bálreið í færslu. Sagði hún að þægileg náttföt væri það eina sem kæmi í veg fyrir að hún myndi brotna saman. Hún þyrfti að vinna, þrífa, elda og sinna milljón hlutum á hverjum einasta degi.

„Ímyndaðu þér að keyra upp að skólanum til að sækja barnið þitt, í sakleysi þínu, og fá svo sent bréf frá aðstoðarskólastjóranum þar sem þú ert beðin um að hætta að vera í náttfötum þegar þú bíður í röðinni eftir barninu. Ég er komin til að sækja barnið mitt, ekki til að fara í atvinnuviðtal,“ segir hún. „Ég sit í mínum eigin bíl að bíða eftir mínu barni, af hverju ertu að fylgjast með klæðnaðinu mínum?“