Sambandið í svefnherberginu á það til að verða fyrir skakkaföllum þegar hasarinn í lífinu tekur öll völd. Þegar kynlífstól koma við sögu þá getur ýmislegt gerst eins og í tilfelli manns sem sendi inn spurningu í dálkinn Dear Deidre í The Sun.
Parið er bæði um þrítugt og hafa verið saman í þrjú ár.
„Það voru hræðileg mistök að kaupa egg handa henni,“ segir hann og vísar til smátitraranna vinsælu sem finna má inni í skáp á mörgum heimilum hér á landi.
„Upp á síðkastið hef ég átt í nokkrum erfiðleikum með að ná og halda stinningu. Streitan í vinnunni og alls konar áhyggjur hafa verið að valda því, ég kenni því um að minnsta kosti. Ég vildi ekki að hún færi að missa áhugann á kynlífi út af því og ákvað ég að kaupa handa henni egg. Við höfðum bæði gaman af því að nota eggið saman.“
Núna er eggið hins vegar orðið að helsta kynlífsfélaga hennar.
„Staðan er orðin þannig að þegar ég spyr hana hvort hún vilji stunda kynlíf svarar hún yfirleitt játandi. Ég veit hins vegar að um leið og ég fer eitthvað þá tekur hún fram eggið. Ég tek alveg eftir því að tappinn er ekki sleipiefninu eða að eggið er ekki á sínum venjulega stað í náttborðsskúffunni hennar,“ segir hann.
„Þegar ég hef spurt hana út í þetta hefur hún viðurkennt að nota eggið stundum. En ég veit að ég get fullnægt henni og vil ekki að hún taki eggið fram yfir mig. Ég fékk aðstoð í vinnunni við að draga úr streitunni og líður nú aftur eins vel og áður. En í hvert sinn sem við stundum kynlíf spyr hún hvort við getum líka notað eggið með. Ég er búinn að fá nóg af þessu.“
Svarið:
Í svarinu frá Deidru segir að egg og önnur kynlífstól eigi sér sinn stað og geti verið skemmtileg viðbót við kynlíf, hvort sem fólk notar þá eitt eða með maka sínum.
„En til lengri tíma ættu kynlífstól aldrei að koma í stað maka, nema viðkomandi sé einhleypur. Finndu hentuga stund til að segja kærustunni þinni að þér finnist allt í lagi að hún noti eggið, en að þú viljir líka taka þátt og að þið getið gert hann að hluta af kynlífinu ykkar.
Útskýrðu fyrir henni að þú viljir vera sá sem hún leitar fyrst til þegar hana langar í kynferðislega nautn, en ekki þetta litla tæki.
Það er auðvelt að nálgast upplýsingar og finna ýmsar hugmyndir að aðferðum og ráðum sem þið getið prófað til að auka kynferðislega örvun hennar.
Það gæti einnig hjálpað þér að læra náttúrulegar slökunaraðferðir ef streitan skyldi aftur fara að hafa áhrif á þig.“