Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hefur birt lista yfir þær 36 þjóðir sem hafa staðfest þátttöku í Eurovision sem fram fer í Búlgaríu í maí næstkomandi.
Ísland er ekki á listanum og skýrist það væntanlega af þeirri staðreynd að Ísraelsmenn verða meðal þátttökuþjóða á næsta ári. Greint var frá því í lok september að stjórn RÚV vildi sniðganga Eurovision áfram nema Ísrael verði meinuð þátttaka.
Allt stefnir í að Ísland, Írland og Holland verði áfram utan keppninnar. Kanada tekur hins vegar þátt í fyrsta sinn og Norður-Makedónía snýr aftur eftir fjögurra ára fjarveru. Spánn og Slóvenía hafa enn ekki tekið ákvörðun um þátttöku og fengið frest til desember.
Eurovision fer fram í Burgas í Búlgaríu dagana 11. til 15. maí 2027.