Fókus

Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang

Mynd
Jenette Goldstein var áberandi í hasarmyndum í áttunni og níunni.

Leikkonan Jenette Goldstein, sem gerði garðinn frægan í hasarmyndum og vísindaskáldskap, á níunda og tíunda áratugnum er óþekkjanleg í dag. Hún hefur einnig algerlega skipt um starfsvettvang.

Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.

Goldstein varð þekkt fyrir hlutverk sitt sem hin grjótharða Vasquez í geimhasarhrollvekjunni Aliens frá árinu 1986. Með rautt band um höfuðið og mundaði hríðskotabyssu á stærð við þreskivél.

Hún lék einnig í fjölmörgum hasarmyndum, hrollvekjum og vísindaskáldskapskvikmyndum á árunum eftir það. Meðal annars Terminator 2, Near Dark, Lethal Weapon 2 og Star Trek Generations.

Fyrir rúmum tíu árum síðan kúplaði Goldstein sig hins vegar út úr leiklistinni og sneri sér alfarið að öðru.

Mynd
Goldstein selur brjóstahaldara og leigir út atvinnuhúsnæði. Mynd/Wikipedia

Goldstein er í dag 66 ára gömul og rekur sitt eigið fasteignafélag fyrir verslanir í borgunum Los Angeles og Atlanta. Einnig selur hún brjóstahaldara undir vörumerkinu Jenette Bras sem hún stofnaði árið 2009.

Goldstein hefur þó ekki alveg sagt skilið við Hollywood því að hún kemur reglulega fram á ýmsum ráðstefnum og viðburðum aðdáenda vísindaskáldskaps og hasarmynda frá síðustu öld. Meðal annars ráðstefnu á þessu ári til að fagna 40 ára afmæli kvikmyndarinnar Aliens.