Leikkonan Jennifer Lawrence (36) ræddi opinskátt um fegrunaraðgerðir, bæði þær sem hún hefur farið í og þær sem hún hyggst láta framkvæma síðar, í viðtali sem birtist í tímaritinu The Cut á þriðjudag. Hún greindi frá því að hún hafi látið lyfta brjóstunum og hyggist einn daginn láta framkvæma andlitslyftingu.
„Mig langar að vera kynþokkafull móðir,“ sagði Lawrence, tveggja barna móðirin í viðtalinu. „Þegar ég kem með börnin í skólann eða leikskólann vil ég líta út eins og kona sem hefur fulla stjórn á hlutunum, jafnvel þótt ég sé nývöknuð og hafi alls enga stjórn á hlutunum.“
Ummælin falla í kjölfar þess að Lawrence stígur formlega inn í fegurðarbransann með vörumerkinu Mes, línu af þremur hárvörum sem kemur á markað í dag. Lawrence stofnaði vörumerkið ásamt Jasmina Aganovic, efna- og líftæknifræðingi frá MIT og frumkvöðli í fegurðariðnaðinum, en þær kynntust eftir að Lawrene sá TED-erindi Aganovic árið 2023. Fyrsta línan samanstendur af viðgerðargrímu (sem kostar 52 dali), sermi til mótunar (sem kostar 44 dali) og úða sem gefur hárinu fyllingu (sem kostar 34 dali). Vörurnar koma í flöskum sem sækja innblástur í leirker.
Þetta verkefni hefur verið lengi í bígerð hjá Lawrence. Hún lýsir sjálfri sér sem „háráhugakonu“ og segir að á fyrstu stigum ferils síns hafi hún verið algjörlega upp á hárgreiðslufólk komin. „Þegar maður er ný og upprennandi leikkona getur maður ekki sagt: ‚Ekki setja þetta í hárið á mér,‘“ sagði hún í samtali við The Cut. „Maður sest í stólinn, segir takk og heldur kjafti.“
Hún sagði tímaritinu Nylon frá því að í prufutökum fyrir X-Men hafi hárinu hennar verið breytt í rauðan, brúnan, svartan og loks platínublondan lit allt á sama deginum.
Þegar hún lauk við gerð annarrar Hunger Games-myndarinnar var hárið á henni svo skemmt að hún lét klippa það í stuttan strákastíl. Hún lýsti klippingunni í samtali við InStyle sem „lítilli uppreisn af minni hálfu.“
Lawrence hefur verið opinská varðandi ákvarðanir sínar tengdar útliti í gegnum árin. Í október síðastliðnum sagði hún tímaritinu The New Yorker að hún hygðist láta stækka á sér brjóstin eftir að hún eignaðist sitt annað barn með eiginmanni sínum, Cooke Maroney.
„Allt fór nokkurn veginn í samt lag aftur eftir það fyrsta,“ sagði hún á sínum tíma. „Eftir það seinna fór ekkert í samt lag aftur.“
Nýlega greindi Lawrence frá því í viðtali við Vogue að hún fái svokallað „baby Botox“, en hún hefur einnig augastað á einni aðgerð sem hún mun þó líklega ekki láta framkvæma.
„Mig langar rosalega mikið að láta fjarlægja fitu úr kinnunum,“ sagði hún. „Ég get það ekki, því allir myndu taka eftir því – en vitið bara að mig langar í þetta.“