Fókus

Erfitt og íþyngjandi að deila forsjá

Mynd
Mynd/Getty Images

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian segir að það sé erfitt og íþyngjandi að deila forræði með rapparanum Kanye West.

Þau skildu árið 2021 og eiga saman fjögur börn.

Í nýju viðtali segir Kim að hún hafi stanslausar áhyggjur af barnsföður sínum.

„Ég hef áhyggjur allan daginn. Þetta er faðir barnanna minna. Ég mun aldrei hafa áhyggjur,“ segir hún.

„Og það er það erfiða við að eiga börn með manneskju sem manni semur ekki vel við. En börnin mín fá ekki að finna fyrir því.“

„Ég reyni mitt besta til að gleyma öllu því neikvæða sem gerðist. Ég þarf að vera raunsæ og sálfræðingurinn minn segir mér að setja skýrari mörk. En okkur tekst að sjá um uppeldið saman án of mikilla vandkvæða.“

Kim segir að hún og Kanye tali voða lítið saman og hún eigi aðallega samskipti við eiginkonu hans, Biöncu Censori, eða umboðsmann hans.

Hún segir Kanye lítið með börnin og viðurkennir að hún fegri gjarnan sannleikann fyrir börnunum.

„Það er erfitt að deila forsjá með einhverjum sem kemur við á nokkurra mánaða fresti en ég segi alltaf við börnin: „Pabbi er í ferðalagi.“ Ég lýg stundum að þeim til að vernda þau, því ég vil að þeim þyki pabbi þeirra bestur í heimi.“