Norskur barnalæknir og prófessor við Háskólann í Ósló telur að börn eigi almennt ekki að hefja leikskólagöngu fyrr en við tveggja til þriggja ára aldur.
Hann segir að eins árs börn séu sérstaklega viðkvæm fyrir aðskilnaði frá foreldrum sínum og er gagnrýninn á þá þróun að sífellt yngri börn verji stórum hluta dagsins á leikskólum.
Vegard Bruun Wyller, 54 ára barnalæknir við Ahus-sjúkrahúsið og prófessor við Háskólann í Ósló, og eiginkona hans, Hedda Bratholm Wyller, 41 árs sálfræðingur, ræða málið í viðtali við norska dagblaðið VG.
Hjónin eiga þrjú börn og ákváðu að bíða þar til þau voru tveggja til þriggja ára áður en þau hófu leikskólagöngu. Hedda hefur verið mikið heima með börnunum undanfarin níu ár og segir að sú ákvörðun hafi kallað á töluverðar fjárhagslegar fórnir.
Gengur gegn öllu sem við vitum
Um 84 prósent eins árs barna í Noregi ganga nú í leikskóla, samanborið við 70 prósent árið 2015. Hjónin telja þróunina varhugaverða.
„Eins árs börn eru líffræðilega mótuð til að mynda tengsl og fjarvera umönnunaraðilans veldur þeim miklum óróleika og streitu,“ segir Vegard.
Hann tekur undir umdeild ummæli Ingrid Hovland, formanns ungliðahreyfingar norska Kristilega þjóðarflokksins, sem kallaði það fyrr á árinu „sjúka menningu“ að senda mjög ung börn í leikskóla.
„Það er ekki gert á forsendum barnanna að senda þau í leikskóla. Þetta er alrangt og stór félagsleg tilraun,“ segir hann.
Hedda tekur í sama streng.
„Mér finnst með ólíkindum að ríkið skuli haga málum þannig að flest eins árs börn séu í leikskóla í allt að 40 klukkustundir á viku eða meira. Þetta gengur gegn öllu sem við vitum um þetta úr þroskasálfræðinni.“
Vilja meiri stuðning við foreldra
Vegard vísar til rannsókna sem hafi sýnt aukin líkamleg streitumerki hjá yngstu leikskólabörnunum, en viðurkennir að ekki sé ljóst hvort snemmbúin leikskólaganga hafi neikvæðar langtímaafleiðingar.
Hjónin telja að foreldrar eigi að hafa raunverulegt val um að vera lengur heima með börnum sínum. Þau vilja að ríkið veiti fjölskyldum fjárhagslegan stuðning til þess og að umönnun barna á heimilum skapi lífeyrisréttindi.
Hedda viðurkennir að hjónin séu í forréttindastöðu þar sem eiginmaður hennar hafi fengið bæði æskuheimili sitt og sumarbústað í arf. Þau hafi engu að síður þurft að forgangsraða og meðal annars sleppt utanlandsferðum og hversdagslegri hlutum eins og að fara út að borða.