Um helgina sáust leikkonan Sofia Vergara (54) og Dan Reynolds (39) haldast í hendur í því sem virtist vera rómantískt kvöldverðarstefnumót. Vergara og Reynolds, sem er söngvari hljómsveitarinnar Imagine Dragons heimsóttu ítalska veitingastaðinn Cipriani í Beverly Hills í Kaliforníu á laugardaginn, samkvæmt myndum sem Page Six birtir.
Á myndunum sést Reynolds halda í hægri hönd Vergara yfir borðið, á meðan hún brosir breitt til hans. Þau voru þó ekki ein á ferð. Með í för voru viðskiptakonan Anastasiu Soare, stofnandi snyrtivörumerkisins Anastasia Beverly Hills, og ónafngreindur karlmaður, sem sat við hlið Reynolds. Vergara var lífleg og hló mikið í þessum notalega kvöldverði.
Vergara og Reynolds fóru síðan saman út um bakdyr veitingastaðarins um klukkan hálf eitt eftir miðnætti.
Reynolds og leikkonan Minka Kelly slitu sambandi sínu fyrr í mánuðinum, en þau höfðu verið saman í fjögur ár.
Síðar sást til hans með fyrirsætunni Chantel Jeffries á tónleikum Miley Cyrus í Hollywood Bowl þann 18. Október. Eftir það birti Kelly dularfulla færslu á Instagram um að halda áfram eftir samband við „sálufélaga“.
Vergara hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna sambands síns við fyrrverandi eiginmann sinn, Joe Manganiello. Eftir að hann hélt því fram í endurminningum sínum, Bloodlines, að hún hefði neitað að faðma hann þegar hann var alvarlega veikur af sjálfsofnæmissjúkdómi og að hún hefði gert gys að honum vegna hundsins hans, Bubbles, sem vegur um 2,3 kíló (hann segist hafa fengið hundinn eftir að hafa glímt við sjálfsvígshugsanir) svaraði hún fyrir sig með því að deila færslu um „narsissíska menn“.
Instagram-saga, sem 35 ára sonur hennar, Manolo, deildi upphaflega, fjallaði um það hvernig er að „eiga við sjálfhverfan einstakling“ og bar hegðun slíkra manna saman við hegðun góðra manna.
„Munið það, krakkar... það skiptir engu máli hversu mikið þið gerið fyrir sjálfhverfan einstakling,“ skrifaði Manolo. „Þeim mun gremjast það, ekkert mun nokkurn tímann duga og þeir munu alltaf, á einhvern hátt, reyna að láta líta út fyrir að þú sért sá vondi,“ hélt hann áfram.
Vergara bætti við táknmyndum sem tengjast hátíðarhöldum, klappandi höndum, kampavíni og konu að dansa, þegar hún endurbirti færsluna.