Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins árið 2021. Millican hefur tvisvar komið til Íslands með sýningar, fyrst árið 2021 með sýninguna Bobby Dazzler og aftur árið 2023 með sýninguna Late Bloomer.
Sarah Millican skaust inn á breska grínbransann með trompi árið 2008 þegar hún var valin Besti nýliðinn á Edinburgh Fringe grínhátíðinni. Á þeim tæplega tveimur áratugum síðan það var hefur hún orðið eitt af stóru nöfnunum í grínheiminum. Húmornum hennar má lýsa sem beittum með hinni klassísku bresku kaldhæðni og sjálfsgagnrýni.
Í nýrri klippu sem hún deilir á samfélagsmiðlum ræðir hún um heimsókn sína til Íslands árið 2021.
„Þegar ég lét sýninguna mína heita Bobby Dazzler þá hélt ég í alvörunni að þetta væri heiti sem allir á jörðinni gætu skilið. Það andskotann ekki þannig,“ segir hún.
„Ég var með sýningu á Íslandi. Já, landinu. Hver sagði þetta? Já helvítis landið. Þú kallaðir þetta ekki einu sinni, hvíslaðir þessu bara að vini þínum. Já, helvítis landið. „Hún var með tvö kvöld í Dartford og svo næsta dag í frystivöruverslun, það er svolítið skrítið.“ Uppskar hún mikinn hlátur en Iceland-verslanirnar má finna víða í Bretlandi.
„Ég var með sýningu í Reykjavík á Íslandi og allir áhorfendurnir héldu að Bobby Dazzler væri nafnið á þeim sem kæmi með mér. Þegar ég kynnti einhvern annan upp á svið þá voru allir bara; „Ó, Bobby hlýtur að vera lasinn“.
Þess má geta að „bobby dazzler“ er breskt slangur yfir eitthvað sem er frábært eða glæsilegt, á það rætur sínar að rekja til norðausturhluta Englands þaðan sem Millican kemur. Ef það ætti að þýða það yfir á ástkæra ylhýra þá væri það „Algjör dásemd“.