Fókus

Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök

Mynd

Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að nafni Sarah Williams. Þá kom að því að hún bað hann um pening, nánar tilgreint um 18 þúsund krónur sem hún sagðist þurfa til að borga símareikninginn sinn.

Stafford hugsaði þá strax að hann væri í vandræðum. Sarah væri ekki sú sem hún sagðist vera. Hann ákvað að hafa vaðið fyrir neðan sig, sleit samskiptunum og blokkaði hana.

„Mín mistök voru að afblokka hana,“ segir Stafford í samtali við Washington Post. Mánuðum eftir að hann lokaði á Söruh stóðst hann ekki freistinguna og hleypti henni aftur inn í líf sitt. Við tóku tvö ár þar sem þau spjölluðu um allt og ekkert. Þegar það kom að því að hittast í raunheimum kom alltaf eitthvað upp á og áfram bað Sarah um pening.

Stafford fékk svo óvænt skilaboð í október á síðasta ári frá rannsakanda hjá lögregluembættinu í allt öðru umdæmi en Stafford er búsettur í. Lögreglumaðurinn var að rannsaka fjársvik þar sem óprúttinn aðili hafði svikið nokkrar milljónir úr fyrirtæki. Stafford vissi í fyrstu ekki hvað hann varðaði um þá rannsókn, ekki fyrr en rannsakandinn bar upp spurninguna um hvernig peningarnir sem voru sviknir frá félaginu enduðu inni á bankareikningi Straffords.

Strafford hafði þarna lagt allan sparnað sinn inn á Söruh og auk þess tekið kreditkortalán til að gefa henni enn meiri pening. Hann hafði jafnvel sótt um margra milljón króna lán. Fjölskyldan er í dag þakklát fyrir að bankinn hafi aðeins lánað Strafford hluta af þeim peningum sem hann óskaði eftir.

Svo kom dagurinn þar sem Sarah bað um reikningsupplýsingar hans. Hún vildi leggja inn á hann pening. Peninginn átti hann svo að leggja inn á svokölluð rafmyntarveski. Strafford gerði eins og honum var sagt og svo gerði hann það aftur, og aftur og aftur. Allt í allt tók hann við um 6 milljónum frá Söruh og millifærði annað og eins hafði hún reynt að senda honum 12 milljónir til viðbótar með tékkum sem reyndust þó innistæðulausir.

Það var þó ekki fyrr en að lögreglan hafði samband sem Strafford áttaði sig á því hverju hann hafði lent í og hvað hann var búinn að flækja sig í. Hann hafði verið svikinn og ekki bara það heldur hafði hann tekið að sér að þvætta peninga fyrir alþjóðleg glæpasamtök.

Sarah var ekki förðunarfræðingur frá Miami. Hún var í raun tveir einstaklingar, hjón í Nígeríu sem skiptust á að þykjast vera kærasta Straffords. Stundum hafði hvorugt þeirra tíma í svikin og létu þau þá gervigreindina um samskiptin.

Lögreglumaðurinn segir í samtali við Washington Post að svona sé algengara en margir halda. Svikarar leita að einmana fólki með djúpa vasa.

„Þau leita að Bandaríkjamanni með púls. Ef sá aðili reynist svo heppilega eiga peninga sem er hægt að stela þá er það bara plús.“

Svikin kallast ástarsvindl en þar nýta svikarar sér einmanaleika og það að flestir vilja verða ástfangnir.

„Að vera skotinn í einhverjum er sterk tilfinning. Þetta vita svikararnir og helga miklum tíma í að byggja upp traust svo þeir geti notfært sér fórnarlömb sín.“