Fjölmiðlafræðingurinn Íris Erlendsdóttir segir samfélagið okkar gera fáránlegar kröfur til karlmanna, þeir megi varla segja nokkuð sem gæti mögulega sært. Á sama tíma sé konum heimilt að gera hvað sem er og öll gagnrýni á þær bönnuð. Þetta kemur fram í grein Írisar hjá Vísi þar sem hún veltir annars vegar fyrir sér brandara bandaríska grínastans Shane Gillis um ræktarfatnað kvenna og hins vegar viðtali við ungan íslenskan frumkvöðul.
Íris skrifar:
„Samfélag okkar gerir fáránlegar kröfur til karlmanna. Þeir eiga að vera sterkir, en ekki of sterkir, karlmannlegir, en ekki of karlmannlegir, viðkvæmir, en ekki veikgeðja. Þeir eiga að sýna konum áhuga, en helst án þess að horfa á þær. Umfram allt er þeim harðbannað að segja eitt einasta orð sem gæti mögulega sært tilfinningar einhverrar konu einhvers staðar.“
Hórur í ræktinni
Hún nefnir brandara sem Shane Gillis flutti nýlega í skemmtiþættinum Saturday Night Life, en þar sagði hann konur klæða sig eins og hórur í ræktinni. Ekki voru allir sáttir með þennan brandara og hefur grínistinn fengið yfir sig harða gagnrýni, svo sem frá leikaranum Dan Levy sem segir brandarann lýsa kvenfyrirlitningu og tala beint inn í ofbeldismenningu. Íris segir að grínið verði fyrirbæri sem margir kannist við. Sumar konur mæti svo fáklæddar í ræktina að lítið sé eftir fyrir ímyndunaraflið en samt sé gerð krafa um að karlmenn horfi ekki á þær.
„Viðbrögðin eru lýsandi fyrir sérkennilega hugmyndafræði okkar tíma: Konur eiga að mega sýna sig, ögra, vekja athygli og jafnvel hneyksla, en aðrir mega helst ekki hafa skoðanir á því sem þær gera. Þegar kona ákveður að sýna líkama sinn opinberlega, lætur taka af sér myndir og birtir þær á samfélagsmiðlum, eru aðeins ákveðin viðbrögð leyfileg. Það má dást að henni, hrósa henni og kalla hana hugrakka, sjálfsörugga og valdeflda, en gagnrýni á framkomuna eða klæðaburðinn er afgreidd sem kvenfyrirlitning. Það er leyfilegt að vekja athygli, en ekki að gera athugasemdir við það hvernig athyglin er vakin.
Þau okkar sem ekki eru blind taka eftir útliti annarra, hvernig fólk klæðir sig og hvernig það kemur fram. Karlmönnum er kennt að sýna tillitssemi í klæðaburði, framkomu og samskiptum, lesa aðstæður, virða félagsleg mörk og skilja að ekki er allt viðeigandi alls staðar. Hvers vegna á annað að gilda um konur?“
Hugrökk eða athyglissjúk?
Víkur Íris svo máli sínu að valdeflingu kvenna og hvernig fjallað sé um slíkt í fjölmiðlum. Hún spyr hvenær það hafi orðið að sérstöku afreki að ögra og hvers vegna fjallað sé um ögrandi framkomu kvenna eins og það sé merki um hugrekki. Vill hún miklu frekar tala um athyglissýki frekar en orð á borð við sjálfsást, valdeflingu eða hugrekki.
Íris telur að athyglissjúkir karlar verði gjarnan að athlægi en á sama tíma sé athyglissjúkum konum hrósað fyrir hugrekki.
„Fjölmiðlar taka þátt í þessum orðaleik. Fáklædd kona er ekki einfaldlega fáklædd heldur „djörf“. Ögrandi framkoma er ekki bara ögrandi heldur „valdeflandi“. Og þegar kona afklæðist fyrir framan myndavél er það allt í einu orðið að listrænni yfirlýsingu um sjálfstæði hennar.“
Nefnir Íris dæmi um viðtal sem birtist nýlega hjá Vísi þar sem rætt var við unga konu sem hefur setið fyrir nakin og gefur út erótískt tímarit. Unga konan sagðist vera stolt af sjálfri sér. Íris spyr hvenær „exhibitionismi“ hafi breyst í hetjudáð og framlag til framfara kvenna. Hvers vegna sé talið hugrakkt að sitja fyrir nakinn og hvers vegna þurfi að gefa því hugmyndafræðilegt gildi þegar ung kona geri slíkt.
„Það er fínt að vera ung, djörf og óhrædd við að ögra. En frelsinu til að ögra fylgir líka frelsi annarra til að láta í ljós skoðanir sínar á ögruninni.“
Rétt er að geta þess að af téðu viðtali má hvorki ráða að Vísir hafi gefið nektarmyndum hugmyndafræðilegt gildi né kallað það hugrekki. Þar er einkum að finna orð ungu konunnar sjálfrar sem lýsir sér sem meistara og segist stolt af sjálfri sér en viðtalið er liður í þáttaröð sem fjallar um ungt fólk sem er að ryðja sér til rúms á Íslandi.
Íris telur það fáránlega birtingarmynd nútímafemínisma að samfélagið eigi að hætta að gera sömu kröfur til kvenna og til karlmanna og að konur eigi að njóta allra réttinda og forréttinda.
„Jafnrétti felst ekki í því að konur fái öll réttindi, jafnvel sérstök forréttindi, en séu síðan undanþegnar gagnrýni og ábyrgð á eigin ákvörðunum. Það felst heldur ekki í því að gera minni kröfur til kvenna en karla og kalla það framfarir.“