Hertogahjónin af Sussex, Harry prins og Meghan Markle, létu sjá sig í Nottingham í gær í sinni fyrstu opinberu heimsókn eftir að þau fluttu aftur til Bretlands.
Hjónin sýndu samheldni þegar þau komu fram og viðburðurinn bar öll einkenni konunglegrar opinberrar heimsóknar: hjónin námu staðar til að heilsa upp á fólk og þáðu blóm, allt á meðan þau studdu við góðgerðarverkefni. Harry og Markle geisluðu af gleði í samtölum við fólkið sem var komið til að fagna þeim, og sögðu það vera „frábært“ að vera komin aftur.
Að sögn sérfræðings í líkamstjáningu lá þó nokkur spenna í loftinu.
Það voru liðin fjögur ár frá því að Markle kom síðast fram opinberlega í Bretlandi, og virtist gæta nokkurs taugaóstyrks hjá henni og Harry þegar þau stigu aftur inn í sviðsljósið.
Harry tók á sig verndandi stellingu og lagði á einum tímapunkti handlegginn utan um öxl eiginkonu sinnar. Markle brást við með því að leggja handlegginn utan um mitti hans; þessi „tvöfalda utanumliggja“ lét líta út fyrir að þau héldu þétt hvert í annað, líkt og fólk sem hefur komist lífs af úr hamförum, sagði líkamstjáningarsérfræðingurinn Judi James í samtali við Daily Mail.
Hún benti á að Harry og Markle hefðu notað líkamstjáningu til að miðla gleði yfir endurkomunni, en að jafnframt mætti greina undirliggjandi spennu hjá Harry, ásamt löngun til að vernda eiginkonu sína.
Að sögn James mátti sjá „svipbrigði sem báru vott um mikinn létti og gleði“ á milli þeirra, en „kveðja Harrys til mannfjöldans, þar sem hann rétti fram flatan lófann, virtist ætluð til að sýna að hann tæki við viðurkenningu þeirra og áframhaldandi ástúð“.
Það voru þó fleiri merki um óróleika.
„Á meðan Harry var í miklum ham sat Markle með annan handlegginn vafinn utan um líkama sinn, eins og hún væri að faðma sjálfa sig, á meðan hin höndin var á lofti í stellingu sem minnir á brotinn væng, eins konar sýndarvarnarleysi þar sem fingurnir snertu hálsinn; en það er annað algengt merki um varnarleysi.“
„Þegar hún leit á eiginmann sinn mátti sjá örstuttan svip í augum hennar sem líktist ótta eða áhyggjum, sem benti til þess að undir yfirborðinu, þar sem þau létu eins og um sigurför væri að ræða, leyndist nokkur óvissa,“ sagði James.
Viðbrögð almennings við heimsókn hjónanna
Um 100 manns söfnuðust saman til að taka á móti Harry og Markle við Community Recording Studio (CRS), góðgerðarstofnun fyrir ungt fólk í Nottingham.
Margaret Langdon, 67 ára frá Carlton, sagði heimsóknina sýna að „allt snýst ekki bara um London“ og að „litlar borgir skipta líka máli“. Kelsey, 12 ára, var einnig á staðnum til að taka á móti parinu og fékk meira að segja eiginhandaráritun frá Meghan, sem skrifaði: „Haltu áfram að skína! Bestu kveðjur, Meg.“
Chloe Harris, 22 ára námskona við Nottingham Trent-háskóla, sagði: „Það var ekki of mikið um að vera; ég var aðeins of sein en náði samt að sjá vel til. Þarna var hópur af miklum aðdáendum Harrys og Meghan sem hrópuðu „ég elska ykkur“, en fólkið var samt færra en ég bjóst við.“
Eftir heimsóknina í vinnustofuna héldu hjónin til Himmah Hub, samtaka sem berjast gegn matarskorti, og héldu síðan áfram á sinn síðasta viðkomustað, Epic Partners. Þau samtök styðja við ungmenni sem búa við erfiðar aðstæður, meðal annars í gegnum samfélagsverkefni, íþróttir og leiðsögn.
Aukinn núningur við konungsfjölskylduna
Sagt er að þessi ferð þeirra hafi valdið frekari núningi við konungsfjölskylduna. Sama dag héldu Karl konungur og Camilla drottning til Cardiff til að setja formlega nýtt starfsár Senedd, þings Wales.
Áður en Harry og Markle komu fram opinberlega í Nottingham, ítrekaði Karl konungur formlega í bréfi frá hirðinni að þau væru ekki starfandi meðlimir konungsfjölskyldunnar og að koma ætti fram við þau eins og hvern annan almennan borgara.
Í fyrirmælunum, sem send voru fyrir hönd konungs af æðsta embættismanni hirðarinnar (e. Lord Chamberlain) til háttsettra embættismanna í stjórnsýslu og her, kom fram að Harry og Markle sinni ekki opinberum skyldustörfum og komi ekki fram fyrir hönd konungsveldisins. Þau mega heldur ekki nota titlana Hans og Hennar Konunglega Hignig (e. His/Her Royal Highness).
Vilja hjónin snúa aftur til starfa innan konungsfjölskyldunnar?
Framkoma hjónanna í Nottingham hefur vakið upp spurningar. Sumir telja að þetta bendi til þess að þau vilji snúa aftur til starfa sem fullgildir meðlimir konungsfjölskyldunnar, á meðan aðrir telja að þau haldi áfram að fylgja eigin sýn um að vera „hálfpartinn inni og hálfpartinn úti“.
Athygli vekur að heimildarmaður náinn hjónunum sagði við blaðið The Telegraph í vikunni að Markle hygðist ekki koma reglulega fram opinberlega. „Hún leggur áherslu á fjölskyldu sína og börn, því næst á viðskipti sín og loks á að endurvekja leiklistarferil sinn,“ sagði heimildarmaðurinn og ítrekaði: „Hún er ekki starfandi meðlimur konungsfjölskyldunnar.“
Harry vill hins vegar halda áfram að koma fram opinberlega og telur sig enn geta gegnt hlutverki í þágu almennings í Bretlandi. Heimildarmaður sagði tímaritinu HELLO! í vikunni að hjónin í Sussex-fjölskyldunni hefðu „aldrei samþykkt að þau mættu ekki vera hálfpartinn inni og hálfpartinn úti“ þegar þau drógu sig í hlé árið 2020. Vinur hjónanna sagði: „Þetta truflar þau ekki. Þau samþykktu aldrei að þau mættu ekki vera hálfpartinn inni og hálfpartinn úti. Það var ákvörðun sem var tekin og þeim þröngvað upp á. Þau lifa einfaldlega sínu lífi, og það geta þau gert, því þau eru fjárhagslega sjálfstæð.“