Fókus

Selma Soffía hafði ekki hugmynd um hvað beið hennar á Saga Class – „Gat ekki barist við gleðitárin“

Mynd
Myndir/Selma Soffía

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Selma Soffía Guðbrandsdóttir var kærasta þegar hún steig upp í flugvél á leið til Barcelona en unnusta þegar hún steig frá borði. Unnusti hennar, matreiðslumeistarinn og eigandi Umami Sushi, Axel Björn Clausen, bað hennar í háaloftunum í lok september og svarið var að sjálfsögðu já.

Við ræddum við Selmu Soffíu um trúlofunina og fríið í fallegu borginni. Hún segir að Axel hafi tekist að koma henni alveg á óvart með bónorðinu.

Mynd
Mynd/Selma Soffía
Mynd
Myndir/Selma Soffía

„Þetta var algjört söpræs! Ég er vanalega mjög athugul og sé strax skrítna hegðun en þarna náði hann alveg að fela þetta fyrir mér. Ég er mjög flugkvíðin manneskja þannig að kannski var ég líka bara aðeins of upptekin af því fyrir flugið sem gerir þetta ennþá fullkomnara fyrir hann,“ segir hún kímin.

„En við vorum einmitt í Saga class fyrir þetta flug og því í extra næs sætum sem gerði atvikið mjög þægilegt og rúmgott fyrir okkur að fagna og skála eftir á. Hann hafði einmitt pantað sitthvort Cremant-glasið fyrir okkur bæði sem mér fannst smá ólíkt honum þar sem hann drekkur yfirleitt bara bjór en skildi svo strax eftir á af hverju það var.“

Mynd
Myndir/Selma Soffía

„Gat ekki barist við gleðitárin“

Axel lét til skarar skríða eftir um tvo tíma í loftinu. „Ég fór á klósettið og kom svo til baka og við fórum að spjalla um daginn og veginn sem allt í einu leiddi til þess að hann fór að segja mjög krúttlega hluti um okkur, sambandið okkar og hversu mikið hann væri þakklátur fyrir mig. Hann greip svo í box í vasanum á sætinu fyrir framan, en hann hafði þá náð í það á meðan ég var á klósettinu svo ég tæki ekki eftir neinu.“

Selma Soffía þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um svarið. „Ég að sjálfsögðu sagði já, enda minn draumamaður, og gat ekki barist við gleðitárin.“

Mynd
Selma Soffía og Axel.

Það er varla til betri leið til að hefja skemmtilegt ferðalag. Þau lentu síðan í Barcelona þar sem þau voru í þrjá daga og færðu sig svo yfir til Marbella. „Við gistum á okkar uppáhaldshóteli þar,“ segir hún.

Þau voru ekki aðeins að fagna ástinni í Barcelona. „Ég átti afmæli þann 5. október og var þetta því að hluta til afmælisferð. Ég bjó sjálf bæði í Barcelona og Marbella og mér þykir því mjög vænt um þessa staði,“ segir hún.

Mynd
Myndir/Selma Soffía

Skemmtilegur ostrubar 

Þar sem Selma Soffía bjó um tíma í Barcelona fengum við hana til að segja okkur frá nokkrum skemmtilegum stöðum sem hún mælir með. 

„Það er svo margt! Borgin hefur því miður breyst svolítið síðan ég bjó þar en það er þó bara eðlilegt. En þegar við förum erlendis erum við aðallega bara að rölta um götur, kíkja í búðir, borða góðan mat og skála saman. Í þessari ferð fórum við á Canete sem er geggjaður tapas-staður í Raval, svo fórum við á Michelin-staðinn Berbena sem er mjög áhugaverður! Svo er okkar uppáhald líka að setjast á ostrubarinn á El Nacional.“

Mynd
Myndir/Selma Soffía

Sveitabrúðkaup kannski í kortunum

Selma Soffía og Axel eru ekkert að drífa sig.

„Eins og er ætlum við að njóta þess að vera trúlofuð og krúttlegt unnustupar í nokkur ár. En svo kannski eftir þrjú til fjögur ár verður okkar draumabrúðkaup. Við höfum rætt alls konar hugmyndir um hvernig okkar draumabrúðkaup yrði en eins og er er ekkert neglt niður. Sveitabrúðkaup hefur þó alltaf verið eitt af mínum uppáhalds,“ segir hún.

@selmasoffia Gerðum svo góð kaup 🫶🏼✨🥂 #íslenskttiktok #fyrirþig #fyp #designerhaul ♬ original sound - selmasoffia

 Parið fagnaði trúlofuninni og afmæli Selmu Soffíu með verslunarferð í Gucci. Selma Soffía elskar lúxus og lúxus elskar hún, en hvað með Axel? Deilir hann þessu sama áhugamáli?

 

„Já, við deilum klárlega ást bæði á tísku og lúxusmerkjavörum. Ég held samt að ég hafi smitað Axel slatta og aukið ást hans á því eftir að við byrjuðum saman,“ segir hún og hlær.

Mynd
Myndir/Selma Soffía
Mynd
Myndir/Selma Soffía

Til að enda þessa ástarfrétt fengum við Selmu Soffíu til að nefna þrjá hluti sem hún elskar við unnustann.

„Vá, erfitt að velja bara þrjá. En það sem ég kannski elska mest við Axel er að hann kenndi mér hvað heilbrigð ást og heilbrigt samband er, bæði meðvitað og ómeðvitað. Hann er ótrúlega þolinmóður, sem er mikilvægt þegar kemur að mér þar sem ég get verið svolítið mikið stundum,“ segir hún kímin.

„Hann er svo ljúfur og svo myndarlegur og það er hin fullkomna blanda af manni að mínu mati.“

Fylgdu Selmu Soffíu á Instagram og TikTok.