North West svarar gagnrýnisröddum og segist ekki vera „djöfulleg“.
North er dóttir raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og rapparans North West. Hún er elsta barn þeirra, þrettán ára gömul.
Útlit hennar hefur verið mikið á milli tannanna á fólki, þá sérstaklega þar sem North notar mikið af snyrtivörum, er með gervilokka í andlitinu, góm svo tennur hennar eru svartar og svo framvegis.
Mörgum þykir klæðaburður hennar og útlit óviðeigandi fyrir svona unga stúlku. Hún hefur líka verið að birta mikið af myndefni á TikTok, þrátt fyrir að vera nýorðin þrettán ára og ekki haft aldur til þess fyrr en nú, og hafa mörg myndbandanna vakið hneykslun.
🪽
Nú hefur North West tjáð sig um gagnrýnina en hún og móðir hennar svöruðu netverjum í beinu streymi á TikTok.
Hún sagði djarft fataval sitt ekki vera vegna skilnaðar foreldra sinna. Hún sagði að þetta hefði verið hennar stíll síðan hún var í leikskóla.
„Hættið að segja að ég sé djöfulleg. Ég er það ekki. Bara vegna þess að mér finnst gaman að klæða mig svona, þá eigið þið ekki að dæma bókina eftir kápunni,“ sagði hún.
„Þið vitið að ég er ekki fyrir þetta djöfladæmi. Ég trúi á Jesú,“ sagði hún einnig.
North West goes LIVE and says her style has nothing to do with Kanye West and Kim Kardashian’s divorce, revealing she’s had the same aesthetic since before they split 👀 https://t.co/M0grHwijPO
— Woody (@nyrbhimself) October 15, 2026
Fyrir ári, þegar hún var tólf ára, fékk hún að gata löngutöng. Kim var harðlega gagnrýnd í kjölfarið en á svipuðum tíma varð líka allt vitlaust þegar North var mynduð með móður sinni, klædd í korsilett og stutt pils.
„Aðrar stelpur eru að hugsa um stráka, veipa og alls konar annað slæmt. Ég vil bara blátt hár og göt,“ sagði North.
Sjá einnig: Sætir harðri gagnrýni fyrir að leyfa 12 ára dóttur sinni að klæðast „óviðeigandi“ fötum