Fókus

Nýtti sér reynslu úr leigubílaakstri í spennusögu og punktaði hjá sér milli túra  

Mynd

Leigubíl finnst brunninn við Reynisvatn og undir stýri eru illa farnar líkamsleifar bílstjórans. Fljótlega kemur í ljós að maðurinn var myrtur áður en kveikt var í bílnum. Rannsóknarlögreglumaðurinn Hlöðver Hlöðversson sér um rannsókn málsins. Hún leiðir að gömlu mannshvarfsmáli og hópi manna sem tengdust rekstri nektardansstaða um síðustu aldamót. 

Höfundurinn er Ágúst Þór Ámundason, sjómaður á fimmtugsaldri sem býr á Laugum í Reykjadal. Ágúst á fjölbreyttan starfsferil að baki og meðal annars er hann útskrifaður leikari af leiklistarbraut Kvikmyndaskóla Íslands og hefur leikið aukahlutverk í mörgum kvikmyndum. Segist hann hafa fengið mikla leiklistarbakteríu um tíma en hann Ágúst hefur lengi fengist við ýmislegt skapandi. „Leigubílstjóri deyr“ er önnur bók hans en hann sendi frá sér spennusöguna Afturgönguna árið 2012. 

Ágúst hefur allt frá árinu 2014 og fram á þennan dag starfað við leigubílaakstur en segist mjög hafa dregið úr þeirri vinnu á allra síðustu árum eftir að leigubílamarkaðurinn gjörbreyttist við lagabreytingu sem opnaði greinina upp á gátt. 

„Maður hefur í seinni tíð verið að draga saman seglin í leigubílaakstrinum á meðan markaðurinn er eins og hann er núna. Þessi starfsgrein fór bara í hundana við þessa lögleysu.“

Rannsóknarlögreglumaður með kynlífsvandamál

Við víkjum talinu að nýju bókinni en rannsóknarlögreglumaðurinn Hlöðver glímir við fortíðardrauga. „Það er alltaf að ásækja hann að æskuvinur hans hvarf sporlaust. Það mál er alltaf að elta hann,“ útskýrir Ágúst. 

„Auk þess glímir hann við flækjur á kynlífs- og tilfinningasviðinu, hann á í vandræðum með sig þar og er með komplexa í sambandi við þau mál. 

Leigubílstjórinn sem finnst myrtur í upphafi sögunnar er einnig fyrirferðarmikil persóna. Blaðamaður ýjar að skyldleika milli þeirrar persónu og höfundarins: 

„Sko, líf mitt og þessa leigubílstjóra er náttúrlega tvennt ólíkt. En mörg atvik í bókinni sem hann lendir í og tengist leigubílaakstrinum, sem og hugleiðingar hans, þetta eru atriði sem ég hef reynslu af,“ segir Ágúst og gengst fúslega við því að hafa sótt í reynslu sína sem leigubílstjóri við ritun bókarinnar. 

Með litla tölvu í leigubílnum

Ágúst  upplýsir að sagan hafi að einhverju leyti orðið til í leigubílaakstrinum. „Atburðarásin kom til mín að einhverju leyti þegar ég var að bíða í leigubílaröðinni við Kringluna og víðar. Ég var með litla fartölvu í bílnum sem ég var stundum að skrifa á, svona á milli túra, það voru svona punktar og samtöl.

En þarna í kringum áramótin 2024 fór ég virkilega að reyna að koma þessu frá mér og þá var það einhvern veginn bara þannig að maður fór bara heim og byrjaði að skrifa. Það kom þetta bara til mín. Ég hef aldrei verið svona færibandarithöfundur sem getur sent frá sér bók á hverju ári. Ég get bara skrifað bók þegar mig langar til þess,“ segir hann og kveðst ekki vera með neitt sérstakt í smíðum í augnablikinu. 

„Jújú, maður veltir alveg fyrir sér nýju plotti og það kemur svona stundum eitthvað til manns og maður hripar það niður eða punktar hjá sér einhverjar hugmyndir.“

Ljóst er að leigubílaaksturinn hentaði ágætlega með ritstörfunum en ekki er farið að reyna eins mikið á sjómennskuna hvað þetta varðar. Ágúst er þó ekki frá því að það eigi eftir að verða til ný bók hjá honum í náinni framtíð.