James Hetfield, söngvari bandarísku þungarokkssveitarinnar Metallica, hefur vakið reiði margra með ummælum sínum um pólitík og áhrifavalda. Roger Waters, úr Pink Floyd, sparar ekki stóru orðin um Hetfield og segir hann með lága greindarvísitölu.
„Metallica er ekki hér, eins og sumir aðrir skemmtikraftar, til að hafa áhrif á þig með bullinu sínu, ok? Við erum hér til að gleyma öllum utanaðkomandi skít. Metallica snýst um ást, orku og þunga tónlist, beibí!“
Þetta var það sem Hetfield sagði á milli laga á tónleikum sveitarinnar laugardaginn 10. október síðastliðinn í The Sphere í Las Vegas, þar sem sem Metallica er með tónleikaröð.
Macklemore málið
Hægt er að setja ummælin í samhengi við nýlega umræðu um rapparann Macklemore sem var vikið af tónleikaferðalagi Ed Sheeran eftir að hafa opinberlega stutt Palestínu á tónleikum. Hefur Sheeran verið gagnrýndur fyrir að ganga erinda milljarðamæringsins Robert Kraft sem á einn tónleikastaðinn sem Sheeran átti að koma fram á og er mikill stuðingsmaður Ísraels.
Sjá einnig:
Kántrýstjarna storkaði Robert Kraft í húsinu hans – „Frjáls Palestína“
Ýmsir tónlistarmenn hafa látið í sér heyra, þar á meðal kántrýsöngvarinn Zach Bryan sem mætti í bol til stuðnings Palestínu í tónleikahöll Robert Kraft.
Ummæli Hetfield hafa vakið athygli og sumir túlkað þau þannig að honum líki illa við að tónlistarmenn séu að ota pólitískum skoðunum sínum að aðdáendum.
„Fífl“ og „nóbóddí“
Einn þeirra er Roger Waters, fyrrverandi söngvari og bassaleikari bresku proggrokk sveitarinnar Pink Floyd, sem er einn dyggasti stuðningsmaður Palestínu og lætur yfirleitt ekki sitt eftir liggja í umræðunni.
„Getum við hætt að tala um þetta fífl?“ sagði Waters. „Ég er svo leiður á honum. Hann er bara að sýna að hann er algjört fífl. Hann er með greindarvísitölu upp á kannski þrjá, og ég skil í raun ekki hvers vegna við erum að tala um hann, því hann er nóboddí og mun aldrei verða það. Hann á kannski nokkur hundruð milljónir dollara eða hvað það nú er, en hann er fífl og enginn tónlistarmaður. Ég heyrði í þeim. Ég heyrði þá reyna að spila á órafmögnuð hljóðfæri, en þeir gátu það ekki. Þetta var hræðilegt.“