Þau Kolbrún Eva Ríkharðsdóttir og Guðmundur Ívar Magnússon, sambýlisfólk í Þorlákshöfn, heyja baráttu fyrir því að Guðmundur geti átt meiri tíma með ástvinum sínum, en hann greindist fyrir skömmu með heilaæxli í annað skipti. Æxlið er óskurðtækt og staðan er því mjög alvarleg en þau eygja von í meðferð erlendis sem enn er í þróun. Þau vilja láta reyna á þann möguleika.
Kolbrún greinir fjölskyldunni frá málinu í pistli á Facebook-síðu sinni sem hún gaf DV góðfúslega leyfi til að fjalla um. Þar segir:
„Kæru vinir og fjölskylda
Okkur langar að deila með ykkur því sem hefur verið að gerast hjá okkur og þeirri ákvörðun sem við höfum tekið varðandi veikindi Guðmundar.
Eins og flest ykkar vita greindist Guðmundur með illkynja heilaæxli í ágúst árið 2022. Hann fór þá í stóra aðgerð þar sem meiri hluti æxlisins var fjarlægður og í kjölfarið sex vikna geislameðferð. Síðustu 4 ár hefur Guðmundur verið nokkuð stöðugur og þó veikindin hafi að sjálfsögðu haft áhrif á líf okkar, þá hafa þau verið dásamleg!
Í ágúst síðastliðnum fengum við svo þær ömurlegu fréttir að nýtt æxli hefði greinst í heilanum. Það er því miður óskurðtækt og læknarnir hér heima hafa gert okkur ljóst að staðan sé mjög alvarleg. Við höfum átt frekar erfiðar vikur síðan þá, en á sama tíma lagt mikla vinnu í að kynna okkur hvaða möguleikar eru í stöðunni.“
Einstaklingsmiðuð ónæmismeðferð
Vonin býr í einstaklngsmiðaðri ónæmismeðferð í Þýskalandi. Meðferðin felur í sér að krabbameinsbóluefni er sérsniðið fyrir sjúklinginn í því skyni að virkja ónæmiskerfið gegn krabbameininu. Þau gera sér grein fyrir því að meðferðin tryggir ekki árangur en þarna er von sem þau vilja láta reyna á:
„Eftir að hafa haft samband við sérfræðinga erlendis og skoðað mismunandi meðferðir höfum við nú ákveðið að Guðmundur fari í einstaklingsmiðaða ónæmismeðferð hjá IOZK í Köln í Þýskalandi.
IOZK sérhæfir sig í einstaklingsmiðaðri ónæmismeðferð við krabbameini. Meðferðin sem Guðmundi hefur verið boðin felur meðal annars í sér krabbameinsbóluefni sem er útbúið sérstaklega fyrir hann, ásamt öðrum meðferðum sem miða að því að virkja ónæmiskerfið gegn krabbameininu.
Þetta er meðferð sem er enn í þróun og við vitum vel að enginn getur lofað okkur árangri. En við viljum reyna það sem við getum og vonum að meðferðin geti hjálpað okkur að fá meiri tíma saman.“
Gífurlega kostnaðarsamt
Ekkert er dýrmætara en mannslíf en það breytir því ekki að meðferðin og tengdur kostnaður hlaupa á vel á annan tug milljóna króna. Þau Kolbrún og Guðmundur geta ekki gert þetta að veruleika án aðstoðar og þar gildir svo sannarlega að margt smátt gerir eitt stórt.
„Það er mjög erfitt að skrifa þessi orð og biðja um fjárhagslega aðstoð, en okkur langar að gera allt sem við getum til að Guðmundur fái tækifæri til að fara í þessa meðferð,“ segir Kolbrún.
Meðferðin sjálf kostar um 11,5 milljónir króna en þegar við bætist ferðakostnaður og annar tengdur kostnaður sem þetta mun hafa í för með sér þá hleypur heildakostnaðurinn á um 15 milljónum króna.
Kolbrún tekur skýrt fram að engum sem les orð hennar eigi að finnast hann eða hún vera skuldbundin(n) til að láta fé af hendi rakna. Hún þakkar jafnframt fyrir hlýhug sem þau hafa fundið fyrir frá mörgum í þessari baráttu þeirra.
Þeim lesendur sem vilja styrkja Kolbrúnu og Guðmund svo hann geti farið í þessa byltingarkenndu læknismeðferð er bent á eftirfarandi reikningsupplýsingar:
Reikningsnúmer: 0370-13-071559
Kennitala: 110585-2689