Fókus

Getur ekki haldið tónleika eða ekið vegna heilsufars - Setur tugi mótorhjóla á uppboð

Mynd

„Ég má ekki keyra,“ sagði bandaríska tónlistargoðsögnin Billy Joel, sem er 77 ára, í viðtali við Hollywood Reporter sem birt var á fimmtudag. Hann tók einnig fram að hann þurfi að gangast undir röð rannsókna  áður en ljóst verður hvort hann geti komið fram á ný.

Þar sem hann getur ekki ekið bíl sagðist Joel ætla að selja meira en 70 mótorhjól sín á uppboði.

„Ég endaði með að eiga meira en hundrað mótorhjól, en sannleikurinn er sá að maður getur bara hjólað á einu í einu,“ sagði Joel. „Ég er kominn á áttræðisaldur núna og áttaði mig á því að ég get ekki hjólað eins mikið og ég gerði áður. Ég vil ekki enda eins og skordýr á framrúðu. Svo ég ákvað að bjóða mörg þeirra upp.“

Mynd
Joel í mars á þessu ári.

Joel tók fram að greining hans á heilavatnssjúkdómi (e.normal pressure hydrocephalus eða NPH) gerir það að verkum að „aksturinn er orðinn svolítið varasamur,“ svo hann „áttaði sig á því að kominn væri tími til að láta þetta í hendur einhverjum öðrum.“

„Ég elska mótorhjól. Ég elska að hjóla. Ég elska að keyra. Ég elska það að geta verið ósýnilegur í umferðinni,“ sagði Joel. „Og ég hef gaman af því að sérsníða hjólin, breyta þeim og dunda mér við að fikta í þeim. Ég var enginn safnari. Ég var í raun og veru ökumaður. Svo mér fannst bara kominn tími til að láta þetta frá mér.“

Mynd
Joel árið 2012.

Á síðasta ári greindist Joel með NPH, sjúkdómsástand sem verður til þegar heila- og mænuvökvi safnast fyrir inni í höfuðkúpunni og þrýstir á heilann. Sjúkdómurinn hefur áhrif á vitræna getu.

Í viðtalinu útskýrði Joel að hann geti ekki komið fram eins og er, þar sem taugalæknir hans sagði við hann: „Í hvert sinn sem þú heldur tónleika er það eins og þú fáir heilahristing.“ Joel sagði að ástæðan fyrir þessu væri „styrkurinn“ á tónleikum hans.

„Rokk og ról er hávært, maður,“ sagði hann. „Rokk og ról hefur nú þegar gert mig heyrnarlausan. Svo það er lýsingin, hljóðið, álagið við að koma fram, áhorfendurnir og orkan í flutningnum. Það er mikið í gangi þegar maður er á sviði. Og læknarnir sögðu: Jæja, þú ættir í raun ekki að vera að gera þetta núna. Þeir þurfa því að rannsaka mig nánar til að sjá hvort ég geti snúið aftur á svið, eitthvað sem ég myndi gjarnan vilja geta gert.“

Mynd
Joel árið 2002.

Joel  greindi frá veikindum sínum í maí 2025 þegar hann aflýsti tónleikum á tónleikaferðalagi sínu. Hann ákvað þá að hætta við alla eftirstandandi tónleika, en hafði áður frestað nokkrum sýningum í kjölfar falls á tónleikum í Mohegan Sun Casino í Montville í Connecticut, í mars sama ár.

Í síðasta mánuði greindi Joel frá því að hann hefði gengist undir heilaaðgerð, eftir að hafa komist að því að hún gæti bætt jafnvægi hans og minni.

„Ég vil ekki missa vitið. Það er erfitt að greina á milli þess sem stafar af aldri og þess sem stafar af sjúkdómi, svo ég samþykkti að láta setja í mig vökvaæðaveitu (e. shunt). Ég fór í aðgerð þar sem slíkt tæki var grætt í heilann á mér, og það hefur í raun bætt ástandið.“ Joel staðfesti að hann hefði orðið var við bata á minni, jafnvægi og almennri „getu til að virka“ eftir aðgerðina. Hann sagði einnig frá því að hann héldi áfram í sjúkraþjálfun og fylgdi ráðleggingum lækna sinna nákvæmlega.

„Ég fer hvergi,“ sagði hann. „Ég er hér. Ég er enn hér.“

Mynd