Fókus

Segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal: „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór“

Mynd
Friðrik Dór Jónsson

Friðrik Dór Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi á rúmlega 15 ára tónlistarferli. En þótt hittarnir hafi verið margir hefur leiðin ekki alltaf verið bein. Eftir fljúgandi start þurfti hann að takast á við vonbrigði þegar næsta plata náði ekki sama flugi.

Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Popparasögur ræðir Friðrik Dór um ferilinn, samstarfið við Sinfonia Nord, væntanleg endalok IceGuys, þátttökuna í Söngvakeppninni með lagið „Í síðasta skipti“ og hvernig textarnir hans hafa stundum virkað eins og dagbókarskrif.

Mynd

Gömlu lögin í nýjum búningi

Friðrik hefur lengi haft áhuga á að heyra lögin sín í útsetningum fyrir sinfóníuhljómsveit. Nú hefur sá draumur orðið að veruleika í samstarfi við Sinfonia Nord, þar sem Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Þórður Magnússon hafa útsett lögin fyrir hljómsveitina. Ásamt Sinfonia Nord er hljómsveitin hans Friðriks einnig með á sviðinu.

„Við erum náttúrlega búin að spila þessi lög í 10 ár einhvern veginn á einhvern ákveðinn hátt og nú er aðeins verið að hræra í því þannig að maður er svona aðeins að endurtengja brautirnar í heilanum,“ segir Friðrik Dór í Popparasögum.

Markmiðið var þó ekki bara að gera eitthvað nýtt. Friðrik vill að tónleikagestir fái það sem þeir búast við af honum, en að hann sjálfur fái líka eitthvað út úr verkefninu. „Ég er svona að reyna að gera þetta þannig að ég sé að fá eitthvað svona, hvað eigum við að segja, einhverja svona listræna ánægju af þessu,“ útskýrir Friðrik.

Hann sjálfur og sjálfstalið helsti óvinurinn

Byrjunin á ferli Friðriks var gríðarlega sterk. Á fyrstu plötunni voru lög eins og Hlið við hlið, Fyrir hana og Leiðarlok, sem gengu vel í útvarpi. Næsta plata stækkaði hins vegar ekki hlustendahópinn með sama hætti. Hún gekk vel hjá aðdáendum hans, en útvarpið tók henni ekki jafn vel. „Það er bara langerfiðasti tíminn fyrir mig á þessum 16 og 17 árum, af því ég er keppnismaður og ég fór bara í fýlu,“ segir Friðrik.

Hann þurfti að horfast í augu við að velgengnin væri ekki sjálfgefin og að velgengni einnar plötu tryggði ekki að næsta plata yrði jafn stór. Með tímanum hefur hann lært að skilja eigið virði frá viðbrögðum hlustenda. „Það er ekkert einhver heimsendir þó það hlusti ekki allir á lagið þitt,“ segir hann. „Og þú ert ekki aumingi þó það sé ekki komin einhver milljón hlustanir.“

Hann segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal. Það þurfi að minna sig á að maður sé meira en tónlistarmaðurinn. „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór,“ segir hann.

 

„Besta sem gat komið fyrir“

Þegar Friðrik tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2015 með lagið Í síðasta skipti hafði hann verið vinsæll tónlistarmaður í nokkur ár. Að hans sögn gaf keppnin honum hins vegar tækifæri til að sýna aðra hlið á sér og svara til dæmis þeim sem höfðu efast um sönghæfileika hans.

Hann mætti sem einn af sigurstranglegustu keppendunum en þegar úrslitin voru kynnt hafði hann á tilfinningunni að hann myndi ekki vinna. „Eftir á þá hef ég oft sagt það að það er svona eiginlega það besta sem gat komið fyrir mann að þurfa ekki að fara út fyrir Íslands hönd,“ viðurkennir hann.

Honum fannst lagið fá að lifa sínu eigin lífi á Íslandi í stað þess að vera lagað að Eurovision-keppninni með enskum texta og annarri framsetningu. Það hefur síðan öðlast sjálfstætt líf utan keppninnar.

Friðrik segir að Í síðasta skipti sé ekki endilega uppáhaldslag allra þeirra sem hafa fylgt honum frá upphafi, en það sé orðið eitt af lögunum sem þjóðin þekkir best.

 

Textar úr hversdagslífinu

Textagerðin hefur alltaf verið mikilvægur hluti af tónlistarsköpun Friðriks. Hann byrjar oft á því að finna texta eða hugmynd og leitar að melódíu sem passar við orðin. „Hér er ég með texta, hvernig get ég látið melódíuna henta þessum texta?“ útskýrir hann.

Stundum kviknar hugmyndin á óvæntum stað. Hann rifjar upp hvernig ein setning sem hann heyrði í samtali tveggja manna í Hagkaup varð kveikjan að texta. „Ég var á kassanum í Hagkaup og voru einhverjir tveir eldri menn við hliðina á mér: „Hvernig ertu? Ja, ég er nú bara skikkanlegur,““ rifjar hann upp.

Síðan segir Friðrik Dór að setningin „Ég er aldrei minni skikkanlegur“ hafi orðið fyrsta setningin í textanum sem svo varð að laginu Dönsum eins og hálfvitar. Hann útskýrir að hann sæki oft hugmyndir í svona hversdagsleg samtöl og byggi texta út frá einni setningu sem honum finnst sérstaklega góð. „Oftast er ég eiginlega bara að gera texta út frá einhverri svona einni setningu sem að mér finnst vera svolítið svona ‚money‘.“

Önnur lög eru persónulegri og líkjast dagbókarfærslum. Friðrik man oft hvar hann var þegar hann samdi ákveðinn texta og hvað hann var að hugsa á þeim tíma. Með árunum hafa textarnir líka breyst. Fjölskyldulíf og aukin ábyrgð hafa haft áhrif á það sem hann yrkir um.

Að hætta á réttum tíma

Nú styttist í að IceGuys-ævintýrinu ljúki en áður ætla þeir að frumsýna kvikmynd og fylla Laugardalshöllina í desember. Friðrik segir að meðlimirnir hafi lært mikið hver af öðrum, bæði sem tónlistarmenn og einstaklingar. Sérstaklega hafi þeir yngri kennt þeim eldri meira um viðskiptahlið tónlistarbransans og mikilvægi þess að passa upp á eigin ímynd. „Mér finnst við hafa bætt mörgu við hvorn annan á margan hátt, hvort sem það er sem bara manneskjur eða sem tónlistarmenn eða sem viðskiptamenn,“ segir hann.

Nú er hins vegar komið að því að setja punktinn. Friðrik segir ákvörðunina ekki sprottna af ósætti heldur einfaldlega af því að þeir vilji hætta á meðan verkefnið er enn skemmtilegt. „Allir brandarar taka enda og þurfa að taka enda því annars verða þeir leiðinlegir,“ segir hann. „Ég held bara að þetta sé réttur tími.“

 

Samstarf sem gaf honum sjálfstraust

Friðrik Dór hefur unnið með tónlistarmönnum úr ólíkum áttum og segir samstarfið við Erp á fyrstu árum ferilsins hafa haft meiri áhrif en kannski sést á yfirborðinu. Erpur var stór stjarna á þessum tíma og Friðrik segir það hafa skipt máli að fá hann með sér í lag.

„Það var ákveðið street cred í að fá Erp að rappa þarna með mér,“ segir hann í Popparasögum. En þetta snérist ekki bara um stöðu Erps í bransanum. „Ég veit bara hvað það gerði fyrir mig, að hafa ákveðna trú á því sem ég er að gera,“ segir Friðrik og tengir það við það þegar hann er nú að styðja yngri tónlistarmenn á svipaðan hátt.

Samstarfið við Bubba Morthens hefur kennt Friðriki Dór að velgengni í tónlist snýst ekki bara um að semja vinsæl lög, heldur líka um agann og vinnuna sem þarf til að halda áfram. Hann lítur á Bubba sem fyrirmynd þegar kemur að vinnusemi, úthaldi og því að sinna sjálfum sér. „Það er gæi sem er svo mikil fyrirmynd hvað varðar agann og bara svona work ethic-ið sem að hann hefur sem tónlistarmaður,“ segir Friðrik.

Hann nefnir líka að söngvarar þurfi að hugsa vel um líkamann, enda sé hann hljóðfærið sem þeir vinni með. Bubbi hafi líka sýnt honum hvað þurfi til að eiga langan feril. „Þú verður bara að minna á þig og koma með nýtt stöff,“ segir Friðrik. Það sé ekki nóg að lifa á gömlum smellum, heldur þurfi að halda áfram að skapa og koma fram, jafnvel þegar hvert einasta lag verður ekki að stórsmelli.

Friðrik segir það hafa verið „stærsta heiðurinn“ að fá Bubba til að taka þátt í lagi sínu, Til hvers þá að segja satt, sem hann samdi í ákveðnu dramakasti heima hjá sér. Þar hafi hann meira að segja fengið Bubba til að spila á munnhörpu, sem honum þótti sérstaklega gaman.

Þegar talið berst að Jóni bróður hans, sem hefur haft mikil áhrif á tónlistarferil hans, segir Friðrik að þótt þeir hafi ekki gefið út mikið efni saman sé sambandið dýrmætt. „Það er sterkt að eiga bróður í sama fagi,“ segir hann og vísar til þess að þeir geti rætt um reynslu og aðstæður sem fólk í öðrum störfum skilji ekki endilega til fulls.

Þetta og margt fleira kom fram í spjalli Friðriks Dórs í Popparasögum.