Leikaraparið Kaley Cuoco og Tom Pelphrey eignuðust sitt annað barn mánudaginn 11. október. Stúlkan hefur fengið nafnið Philomena Carmine Bobby. Fyrir á parið hina þriggja ára gömlu Matildu.
„Það eru engin orð til að lýsa þessari tilfinningu, enn á ný,“ skrifaði Cuoco (40) á Instagram á miðvikudaginn, ásamt myndum af parinu með nýfæddri dóttur sinni.
„Þvílík blessun. Við erum svo þakklát fyrir þessa villtu og ótrúlegu vegferð, með öllum sínum hæðum og lægðum, sem leiddi okkur að litla Philo! Fjölskyldan er nú formlega fullskipuð. Kominn tími til að fara með barnið hennar Matildu heim!“
Cuoco skrifaði einnig að líf Pelphreys hafi „breyst gjörsamlega um leið og við hittumst, og gjafirnar halda áfram að streyma að.“ „Ég elska þig að eilífu, pabbi litlu stúlkunnar.“
Cuoco, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum The Big bang Theory, kom til Íslands árið 2021 þegar hluti af tökum fyrir aðra þáttaröð The Flight Attendant fóru fram hér á landi.
Cuoco og Pelphrey (44) hafa verið saman síðan 2022. Þau eru með sama umboðsteymi og byrjuðu saman í kjölfar skilnaðar Cuoco við annan eiginmann sinn, Karl Cook. Fimm mánuðum eftir að þau Pelphrey stigu fram sem par, greindi Cuoco frá því að þau ættu von á barni. Matilda fæddist í mars 2023.
Árið eftir bað Pelphrey Kuoco um að giftast sér þrátt fyrir að hún hefði áður svarið þess eið að hún myndi aldrei ganga í hjónaband aftur.
Í kjölfarið lét Cuoco þau orð falla við tímaritið People að „kannski kæmi annað barn“ á undan brúðkaupinu. „Við ætlum að gera hlutina í allt annarri röð en venjulega. Það er planið.“