Það þarf hvorki að fylgja ströngum mataræðisreglum né neita sér um allan óhollan mat til að bæta heilsuna. Raunar er mun líklegra að fólk haldi sig við hollt mataræði til lengri tíma ef það leyfir sér undantekningar öðru hverju.
Þetta segir Christopher Gardner, prófessor í læknisfræði og yfirmaður næringarrannsókna við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum, í viðtali við breska dagblaðið The Guardian.
Gardner hefur rannsakað næringarfræði í meira en þrjá áratugi og er nú að gefa út bókina Food Sense: What to Eat and Why, þar sem hann tekur saman helstu niðurstöður rannsókna sinna og fjallar um hvað fólk eigi að borða og hvers vegna.
80 prósenta reglan
Að sögn Gardners hefur umræðan um hollt mataræði orðið óþarflega flókin. Samfélagsmiðlar, markaðssetning og misvísandi heilsuráð hafi skapað rugling meðal almennings, þótt vísindamenn séu í raun sammála um flest það sem skiptir máli.
Hann segir eina einfalda reglu geta hjálpað fólki að bæta mataræðið án þess að gera óraunhæfar kröfur til sjálfs sín.
„Reyndu að borða mjög hollt í 80 prósent tilvika. Það eru miklu meiri líkur á að þú haldir þig við hollt mataræði ef þú leyfir þér einstaka undantekningar heldur en ef þú setur þér mjög strangar takmarkanir.“
Gardner leggur áherslu á að hver máltíð sé tækifæri til að taka betri ákvörðun. Hann nefnir sem dæmi að egg séu almennt betri morgunverður en sykrað morgunkorn. Ef eggin séu hins vegar borðuð með miklu magni af osti, beikoni og pylsum geti máltíðin innihaldið óhóflega mikið af mettaðri fitu.
Engin töfralausn í mataræðinu
Gardner segir hugmyndir um svokallaða ofurfæðu geta verið villandi. Engin ein matvara geti tryggt góða heilsu og jafnvel dökkt súkkulaði eigi fremur að teljast sælgæti sem fólk njóti af og til.
Hann bendir jafnframt á að fólk þurfi ekki að gerast grænmetisætur eða vegan til að bæta mataræðið. Mikilvægara sé að auka neyslu grænmetis, ávaxta, heilkorna og belgjurta.
„Ef fólk myndi einfaldlega borða meira úr jurtaríkinu myndi það leysa stóran hluta vandans.“
Hann rifjar einnig upp fræga ráðleggingu bandaríska rithöfundarins Michael Pollan frá árinu 2006: „Borðaðu mat. Ekki of mikið. Mest úr jurtaríkinu.“
Gardner segir þessi einföldu skilaboð í raun ná utan um megnið af því sem hann hafi komist að á löngum rannsóknarferli sínum.
Varar við ruglingi um mikið unnin matvæli
Í viðtalinu gerir Gardner einnig athugasemdir við umræðuna um mikið unnin matvæli. Hann segir mikilvægt að greina á milli vinnslustigs matvæla og raunverulegrar næringarsamsetningar þeirra.
Sem dæmi nefnir hann hafra, sem hægt sé að kaupa í ýmsum myndum, allt frá heilum hafrakjörnum til haframjöls. Þótt vinnslustigið sé mismunandi séu þetta í grunninn sömu matvælin.
Hann telur því varhugavert að dæma matvæli eingöngu út frá því hversu mikið þau hafa verið unnin.
Gardner segir grunnráðleggingarnar í raun einfaldar: Borða fjölbreyttan mat, leggja áherslu á matvæli úr jurtaríkinu og takmarka viðbættan sykur og óhóflega neyslu mettaðrar fitu.
Hann vonast til að nýja bókin hans hjálpi fólki að átta sig á að hollt mataræði þurfi ekki að vera flókið.