Fókus

Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig

Mynd
Spheeris og Aniston.

Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim tilgangi að niðurlægja Spheeris við tökur á myndinni Five árið 2011.

Spheeris, sem er áttræð, hélt því fram í hlaðvarpinu Moynihan Report að Friends-stjarnan hefði gefið henni dildó sem var skreyttur með kristalgleri (e. rhinestone) og var þannig ekki einu sinni hægt að nota. 

Spheeris tók fram að gjöfin hefði komið frá framleiðanda en verið í gjafaöskju sem hún telur að Aniston hafi gjarnan notað undir gjafir.

„Þegar tökum lauk kom aðstoðarleikstjórinn til mín og sagði: ‚Sestu í stólinn,‘“ rifjaði hún upp. „Ég settist niður og allt tökuliðið safnaðist í kringum mig. Framleiðandinn hennar kom að með gjafakassa.“

Þótt Spheeris hafi í fyrstu talið uppátækið „mjög sætt,“ varð hún æf: „Það var helvítis dildó þarna ofan í, fyrir framan allt tökuliðið. Átti ég að opna pakka með dildó?“

Hún lýsti gjöfinni sem „illkvittinni“ og útskýrði hvers vegna hún teldi að hún hlyti að vera frá Aniston.

Mynd
Penelope Spheeris.

„Þegar við vorum tilnefndar til verðlauna á Directors Guild árið 2012 kom hún með sams konar gjafakassa í hendinni,“ útskýrði Spheeris. „Hún kom til mín og ég sagði: Hvað er í honum? Annar gervilimur? Og hún svaraði: ‚Nei, þetta er gjöf handa framleiðandanum Mörtu Kauffman.‘“

„En þetta var eins kassi“ hélt hún áfram. „Nákvæmlega eins gjafakassi. Þetta voru gjafakassar Jennifer Aniston.“

Spheeris bætti við í gríni: „Ég verð líklega kærð fyrir þetta, en hvað um það.“

Mynd
Leikstjórar Five.

Five var safn stuttmynda (e. anthology) á sjónvarpsstöðinni Lifetime, þar sem hver mynd fjallaði um áhrif brjóstakrabbameins. Aniston og Spheeris leikstýrðu hvor um sig einum hluta verksins, líkt og Alicia Keys, Demi Moore og Patty Jenkins.

Aniston sagði við tímaritið Glamour í ágúst 2011 að markmið hennar með verkefninu hefði verið að miðla upplýsingum „án þess að vera of þunglamaleg í nálguninni.“ Krabbamein snertir okkur öll, hvort sem um er að ræða dóttur, móður, systur, vinkonu, samstarfsmann, lækni eða sjúkling. Þessar kvikmyndir varpa ljósi á þennan veruleika.“