Sumir kalla þyngdarstjórnunarlyf á borð við Ozempic og Wegovy töfralyf, en það eru engir töfrar á bak við hinar mörgu mögulegu aukaverkanir sem geta fylgt notkun þeirra.
Algengustu aukaverkanirnar eru meltingartengdar, eins og uppköst og niðurgangur. Síðan geta verið alvarlegri og sjaldgæfari aukaverkanir, eins og sjónmissir.
Sjá einnig: Missti 65 kíló á Ozempic – „En ég er líka að missa vitið, minnið, sjónina, málið og heyrnina“
Fólk hefur líka kvartað undan hárlosi og samkvæmt nýrri rannsókn virðist vera tenging á milli GLP-1 lyfja og hárþynningar karlmanna.
„Það gæti verið lyfið, það gæti verið þyngdartapið, það gætu verið efnaskiptabreytingar, það gæti verið næringarskortur. Það er margt ólíkt sem gæti verið í gangi þarna,“ sagði húðlæknirinn Garolyn Goh við Washington Post.
Sjá einnig: Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
En það er ekki bara hárheilsan sem gæti þurft að borga brúsann fyrir minna mitti, heldur líka neglurnar.
Á ársþingi EADV í lok september og byrjun október voru niðurstöður rannsóknar á hárlosi og naglavandamálum hjá notendum GLP-1 lyfja kynntar, en niðurstöðurnar sýna tengsl en sanna ekki að lyfin valdi þessum vandamálum.
Samkvæmt niðurstöðunum sögðust 39 prósent þeirra sem notuðu GLP-1 lyf hafa upplifað að nögl hafi losnað frá naglabeði. Til samanburðar var hlutfallið 9 prósent meðal þeirra sem hafa aldrei notað slík lyf. Munurinn milli hópa er því nokkuð mikill, um fjórfaldur.
Rannsakendur telja að ýmislegt spili þar inn í, eins og hratt þyngdartap og næringarskortur.
Þekkt er að mikið þyngdartap á skömmum tíma, hvort sem það er vegna öfgakenndra megrunarkúra, þyngdarstjórnunarlyfja eða efnaskiptaaðgerða, getur valdið álagi í líkamanum og þar með hárlosi og hugsanlega naglavandamálum. Fólk fær minna af næringarefnum sem eru nauðsynleg hár- og naglavexti, svo sem prótín, kalsíum, fólat, B12 og járn.