Fókus

Komst að því að eiginmaðurinn var skráður á „dogging-vefsíðu“ – „Ég er miður mín“

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint. (Pexels)

„Mig var farið að gruna að eiginmaður minn væri að halda framhjá mér, þannig ég ákvað að kanna það frekar og komst að því að hann er skráður á tugi stefnumótasíða.“

Svona hefst bréf konu til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun, Dear Deidre.

Hún óskar eftir ráðum.

„Það er eins og ég þekki ekki manninn sem ég giftist. Hann lætur mér líða eins og ég sé skítug. Það sem kom mér mest á óvart var að hann var skráður á „dogging-vefsíðu“.“

Dogging er hugtak og vísar til kynlífs með áhorfendum og jafnvel öðrum þátttakendum. Dogging er enskt slangur fyrir kynlíf utandyra eða á opinberum stöðum, gjarnan þar sem aðrir geta fylgst með. Aðrir koma til að taka þátt eða horfa á, eða bæði. Fólk í „dogging samfélaginu“ notar vefsíður eða spjallhópa til að finna hvert annað. 

„Eiginmaður minn er bókari, svona lagað er ekki í eðli hans,“ segir konan.

Hún er 52 ára og hann er 55 ára. Hana fór að gruna að það væri ekki allt með felldu þegar hann byrjaði að verja meiri tíma utan heimilisins.

„Hann notar sama lykilorðið fyrir allt, þannig að eitt kvöldið skoðaði ég símann hans og fann öll forritin og síðurnar. Hann hafði sent konum skilaboð og myndir.

Á dogging-vefsíðunni var hann að spjalla við eina konu en ég veit ekki betur en að þau hafi ekki hist.

Ég er miður mín. Ég get ekki fengið mig til að nefna þetta við hann. Ég veit ekki hvernig ég á að nálgast þetta.“

Ráðgjafinn svarar:

„Þú verður að tala við hann, annars á þér eftir að líða hræðilega. Segðu honum að þú vitir hvað hann hefur verið að gera og spurðu af hverju hann getur ekki talað við þig.

Það er auðvelt að skrá sig á stefnumótasíður, var hann forvitinn eða alvarlega að hugsa um að halda framhjá? Og af hverju þá?“