Fókus

Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum

Mynd
Saurora Grace. Mynd/Instagram

Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar fólk með nánd og kynlíf.

Hún hefur sofið hjá yfir hundrað giftum karlmönnum undanfarin sex ár, síðan hún hóf þennan starfsferil. Hún segir að þrátt fyrir gagnrýnisraddir bjargi hún hjónaböndum. Hún segir örvæntingarfulla karlmenn leita til hennar og að þeir hafi margir hverjir ekki stundað kynlíf með eiginkonu sinni í mörg ár, stundum nokkra áratugi.

„Þetta starf snýst ekki bara um kynlíf í mínum huga, heldur manneskjuna á bak við,“ segir hún við The Sun.

Hún veitir pörum einnig aðstoð, en þjónusta hennar snýst ekki aðeins um kynlíf heldur líka um að fara dýpra. Saurora heldur því fram að hún bjargi hjónaböndum og það sé henni að þakka að sumir menn séu enn með eiginkonum sínum eftir að hafa leitað til hennar.

„Hún ætti að þakka mér fyrir“

Einn fastakúnni hennar er maður á sextugsaldri. „Þegar hann byrjaði hjá mér hafði hann ekki stundað kynlíf í tíu ár. Hann sagðist þurfa hjálp við eiginkonu sína, hann gat ekki talað við hana um kynlíf og hún var aldrei tilbúin í neitt nýtt [...] Hann sagði henni frá mér og hún rannsakaði mig en vildi ekki hitta mig með honum, henni fannst ég of aðlaðandi.“

Maðurinn hitti Sauroru í laumi og gerir það enn. Saurora segir að maðurinn sé búinn að stunda kynlíf með eiginkonu sinni en hann sé enn að reyna að fá hana til að gera það oftar. „Hann stundar enn kynlíf með mér. Ef það væri ekki fyrir mig þá væri hann farinn frá henni. Þannig hún ætti að þakka mér fyrir að bjarga hjónabandinu þeirra.“

Kærastinn skilningsríkur

Saurora er í sambandi og segir að kærastinn sýni starfi hennar skilning. 

„Hann skilur að þetta sé mikilvægur hluti af þeirri manneskju sem ég er,“ segir hún.

„Auðvitað er fullt af fólki sem kallar mig alls konar illum nöfnum. En enginn sér þessa menn grátandi nema ég. Þeir eru örvæntingarfullir og vilja bjarga hjónabandinu sínu. Ég hjálpa þeim.“