Gunnar Salvarsson, fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður, kemur borðstofu heimilanna til varnar.
Hann las á dögunum grein í virðulegu bresku dagblaði um tilvistarkreppu borðstofunnar og tjáir sig um málið á pistli á Vísi.
„Samkvæmt könnun hefur nær fjórðungur breskra húseigenda breytt borðstofunni í eitthvað allt annað, oft skrifstofu eða leikherbergi. Fjarvinna eða heimavinna er sögð helsta skýringin á þessari breytingu. Hvert rými þarf að réttlæta tilveru sína.“
Sjálfur sat hann við borðstofuborðsenda við skrif pistilsins en tölvan fer í felur þegar þarf að leggja á borð.
„Ég gæti ímyndað mér að síðasta stóra breytingin innan veggja heimilisins hafi verið þegar eldhús, stofa og borðstofa gengu í eina sæng. Þrjú rými urðu að einu [...] Ég hef áhyggjur af borðstofunni og afdrifum hennar. Segi það satt.“
Gunnar segir að á mörgum heimilum séu engin skörp skil á milli vinnu og einkalífs. „Margir taka vinnuna með sér heim, vinna að einhverju leyti í fjarvinnu með tölvuna á borðstofuborðinu, sófaborðinu eða á rúmstokknum. Og þegar fólk er á kafi í vinnunni heima hjá sér hættir því eðlilega til að gera lítinn greinarmun á því hvenær það er sérfræðingur hjá fjármálastofnun eða ábyrgðarfullt foreldri með kornabarn.“
Gunnar segir að borðstofan og sérstaklega borðstofuborðið hafi þurft að gjalda fyrir þessa þróun.
„Meira að segja heilaga stundin sem kvöldverðurinn var á íslenskum heimilum áratugum saman er í útrýmingarhættu. Margir gleypa einfaldlega eitthvað á þeytingi og borða þegar maginn kallar, ekki klukkan 19:00 þegar kvöldmaturinn á að hefjast. Og sjáist einhvers staðar fjölskylda setjast niður yfir kvöldverð, aðkeyptan eða eldaðan, eru flestir við borðið með nefið ofan í símanum. Samverustundin þar sem allt heimilisfólk kom saman við kvöldverðarborð (borðstofuborð) og ræddi um viðburði dagsins má muna fífil sinn fegri.
Svona horfir maður á lífið sigla fram hjá með alls konar breytingum. Alls ekki öllum til góðs eða framfara. Þurfum við ekki að taka samtalið…?
Við gætum jafnvel byrjað við borðstofuborðið ef það er laust.“
Lestu pistilinn hans Gunnars hér. Hann ræðir einnig um tilkomu leikherbergja barna og hvernig börn áttu áður fyrir að hafa hljótt og læðast meðfram veggjum.