Leikararnir Keri Russell og Matthew Rhys höfðu gaman af því að nota gervi í þáttunum The Americans, sem sýndir voru í sex þáttaröðum frá janúar 2013 til maíloka 2018.
Russell greindi frá því að hún og Rhys, sem léku saman í þáttunu, áður en samband þeirra þróaðist yfir í rómantík, hafi stundað kynlíf í laumi á tökustað.
„Við vorum að verða ástfangin, vöktum alla nóttina, stunduðum kynlíf allan tímann og vorum í gervum, ég var til dæmis í klikkuðum hárkollum og perlufestum,“ rifjaði hún upp í hlaðvarpi Chelsea Handler, Dear Chelsea, sem kom út 8. október.
„Hvenær annars hefur maður verið með perlufesti og stundað kynlíf í húsbílum og bara alls staðar?“ hélt hún áfram. „Þetta var algjört brjálæði.“
Russell minntist þessa ævintýralega tíma með hlýhug. „Þetta var svo skemmtilegt, leyndardómsfullt, kynþokkafullt og frábært,“ sagði hún.
Russell, sem er fimmtug, og Rhys, sem er 51 árs, fóru að draga sig saman seint á árinu 2013 eftir að hún skildi við fyrrverandi eiginmann sinn, Shane Deary, eftir tæplega sjö ára hjónaband. Þau eiga saman 19 ára son og 14 ára dóttur.
Russell og Rhys náðu vel saman við tökur á The Americans, en þar léku þau njósnara á vegum sovésku leyniþjónustunnar KGB sem þóttust vera bandarísk hjón.
Í hlaðvarpsþættinum ræddi Russell um hvers vegna hún og Rhys, en þau eiga saman tíu ára soninn Sam, eru ekkert að drífa sig í hjónaband eftir þrettán ár saman.
„Ég hef haldið stóra veislu sjáið þið til. Ég fæ tækifæri til að klæða mig upp allan tímann og ég veit að fyrir marga þýðir hjónaband eitthvað annað,“ útskýrði Russell. „Áður fyrr þurfti fólk að vera gift til að fá kreditkort. Við getum fengið kreditkort núna. Ég þarf ekki að láta eftirnafnið mitt hverfa,“ hélt hún áfram.
Hún tók jafnframt upp hanskann fyrir Rhys, sem minntist hennar ekki í þakkarræðum sínum tveimur á Emmy-verðlaunahátíðinni í síðasta mánuði, þegar hann hlaut verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki í stuttri þáttaröð eða kvikmynd fyrir The Beast in Me, auk verðlauna fyrir besta leik í aðalhlutverki í gamanþáttaröð fyrir Widow’s Bay.
Hún sagðist í raun hafa gefið honum leyfi til að sleppa því að þakka sér, nokkrum dögum áður, þegar hann var „svo stressaður“ yfir því að þurfa mögulega að halda ræðu fyrir framan fólk.
„Ég horfði á hann nokkrum dögum áður og sagði: ‚Jæja, geturðu útskýrt hvað það er sem veldur þér mestum kvíða?‘“ rifjaði hún upp. „Og hann svaraði: Já, það að þurfa að tala. Ég sagði: Skiljanlegt. Og bætti við: Ekki hafa áhyggjur af mér. Þú þarft ekki að þakka mér. Ég veit að þú elskar mig.“ Hún bætti við: „Mér er alveg sama þótt þú viljir þakka hundagöngumanninum. Gerðu bara það sem þú vilt. Þetta er þín mínúta. Þetta eru þínar 45 sekúndur. Þannig að ég sagði bara: Ekki hafa áhyggjur af mér.“