Nýjasta kvikmynd stórleikarans Tom Cruise, Digger, gæti orðið eitt mesta fjárhagslega flopp í sögu Hollywood þegar tekið er tillit til framleiðslukostnaðar og tekna af miðasölu.
Sérfræðingar áætla að myndin gæti tapað allt að 245 milljónum dala, jafnvirði um 30 milljarða íslenskra króna.
Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið BBC.
Aðsókn að myndinni hefur verið langt undir væntingum og dróst miðasalan saman um 60 prósent aðra sýningarhelgina. Alls hefur myndin aflað um 35 milljóna dala á heimsvísu, en áætlaður kostnaður við framleiðslu og markaðssetningu nemur 280 milljónum dala.
Cruise fer með hlutverk olíuauðjöfursins Diggers Rockwell í myndinni sem leikstýrt er af Óskarsverðlaunaleikstjóranum Alejandro G. Iñárritu, sem meðal annars er þekktur fyrir The Revenant og Birdman.
Samkvæmt kvikmyndamiðlinum Variety er búist við að heildartekjur myndarinnar af miðasölu verði aðeins um 50 milljónir dala þegar sýningum lýkur. Talið er að tekjurnar þyrftu að ná allt að 350 milljónum dala til að myndin stæði undir kostnaði, þótt Warner Bros. telji að 300 milljónir dala myndu nægja.
Gangi spárnar eftir gæti Digger skipað sér í hóp þeirra kvikmynda sem hafa tapað mestu fé í sögu Hollywood, en í þeim hópi eru til dæmis Cutthroat Island, John Carter og The Adventures of Pluto Nash.
Myndin hefur jafnframt fengið dræmar viðtökur gagnrýnenda og brást Warner Bros. við með nýrri auglýsingaherferð þar sem áhorfendur voru hvattir til að sjá myndina og mynda sér eigin skoðun.
Cruise virðist þó ekki láta slæma miðasölu slá sig út af laginu. Í síðustu viku sagðist hann ekki hugsa um tekjur fyrstu sýningarhelgarinnar þegar hann gerði kvikmyndir. Markmiðið væri fremur að skapa verk sem lifðu áfram og stæðust tímans tönn.
Slæmt gengi Digger vekur sérstaka athygli í ljósi velgengni Cruise undanfarin ár, ekki síst með myndunum Top Gun: Maverick og Mission: Impossible.